Körfubolti

Hákon henti sér ítrekað í gólfið: „Jesús Kristur, stattu í lappirnar drengur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hákon Örn Hjálmarsson, leikmaður ÍR, fékk að heyra það frá sérfræðingum Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport á fötudagskvöldið.

Það var þeirra mat að hann sýndi of mikinn leikaraskap í leik gegn Stjörnunni og henti sér of auðveldlega í jörðina.

Hákon er 17 ára leikmaður sem þykir mikið efni.

„Jesús Kristur, stattu í lappirnar drengur,“ sagði Fannar Ólafsson á föstudagskvöldið en hér að neðan má sjá þessar stórglæsilegu dýfur Hákons.

Uppfært klukkan 18:35 - Vísir hefur fengið sent myndband af þessum atvikum frá öðrum sjónarhornum þar sem hlið Hákons kemur öðruvísi út. Þar má sjá að hann fær til að mynda högg í samstuði sínu við Hlyn Bærings. Hér að neðan má sjá umrætt myndband. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×