Handbolti

Hákon Daði: Erfiðustu leikir sem ég hef spilað

Smári Jökull Jónsson í Vestmannaeyjum skrifar
Hákon Daði Styrmisson.
Hákon Daði Styrmisson. Vísir/Ernir
Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson var ÍBV-liðinu erfiður í undanúrslitaeinvígi Hauka og ÍBV en Haukarnir komust í úrslit í dag með sigri í fjórða leiknum úti í Eyjum.

Hákon Daði Styrmisson skoraði 41 mark fyrir Hauka í fjórum leikjum eða meira en tíu mörk í leik. Hann kom frá ÍBV um áramótin, fór illa með sína gömlu félaga og var augljóslega létt eftir sigurinn í Eyjum í dag.

„Ég er hrikalega feginn að þetta er búið. Þetta hafa verið erfiðustu leikir sem ég hef spilað. Maður var nokkrum sinnum alveg að fara að gefast upp en það má ekki. Maður verður að halda áfram,“ sagði Hákon í samtali við Vísi eftir leik.

Haukar lentu í töluverðu mótlæti í fyrri hálfleik þegar Giedrius Morkunas markvörður fékk rautt spjald og Tjörvi Þorgeirsson fór af velli meiddur.

„Það þýðir ekkert að hugsa um það í leiknum. Maður þarf að setja svona lagað bakvið sig og lifa í núinu. Við þjöppuðum okkur saman og það kemur alltaf maður í manns stað. Janus Daði steig upp og Elías kom með hrikalega mikilvæg mörk“.

„Þetta hefði getað fallið báðum megin. Við vorum heppnir að klúðra þessu ekki í lokin og köstuðum þessu næstum frá okkur. Það er hrikalega stutt á milli í þessu“.

Stemmningin í stúkunni í Eyjum var svakaleg. Haukar mættu með hóp stuðningsmanna og þá voru Hvítu Riddarar þeirra Eyjamanna háværir sem áður.

„Þetta var frábært. Það komu flottir Haukamenn að styðja við bakið á okkur og Hvítu Riddararnir og fólkið hér í Eyjum er ótrúlegt. Ég finn vel fyrir stuðningnum sem ég fæ frá fólkinu hér í Eyjum og mig langar að þakka fyrir það,“ sagði Hákon Daði Styrmisson að lokum.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 28-30 | Haukar í úrslit fjórða árið í röð

Haukar eru komnir í úrslit Olís-deildar karla í handknattleik eftir sigur á ÍBV í Eyjum, 30-28. Haukar höfðu yfirhöndina nær allan leikinn en Eyjamenn voru afar nálægt því að tryggja sér framlengingu í lokin. Það kemur í ljós á morgun hvort það verður Valur eða Afturelding sem mæta Haukum í úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×