Háflug og fullveldi

Fréttablaðið Fastir pennar 28. janúar 2012 06:00
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson skrifar:
Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um hátt flug þingmannsins. Það minnti Grím Thomsen til að mynda á flug valsins þegar hann er kallaður fálki. Nú bregður svo við að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að fullveldi þjóðarinnar sé í húfi vegna háflugs opinberra starfsmanna til Brussel.

Kenning ráðherrans er sú að opinberir starfsmenn sem fara á fundi í aðalstöðvum Evrópusambandsins ánetjist svo flugferðum, hótelgistingum og dagpeningum að þeir vilji ólmir fórna fullveldi landsins fyrir þess háttar persónulegt makræði. Forystumenn opinberra starfsmanna telja þetta vera tilhæfulausa aðdróttun og móðgun.

Vandinn er sá að þetta er ein af þeim fullyrðingum sem vinsælar eru í pólitískri umræðu fyrir þá sök að enginn fótur þarf að vera fyrir þeim því útilokað er að afsanna þær. Forystumenn opinberra starfsmanna geta ekki hrakið álit ráðherrans með öðru móti en að ábyrgjast drengskap og heiður hvers einstaks opinbers starfsmanns sem hér á hlut að máli. Það er ekki einfalt.

Það spaugilega við staðhæfingu ráðherrans er að þáttur í embættisskyldum hans er að sitja slíka fundi eða láta sækja þá í sínu nafni. Reyndar er það svo að hann er eini íslenski ráðherrann sem á fastan seturétt á ráðherrafundum Evrópusambandsins vegna Schengenaðildarinnar. Ráðherrann telur hins vegar að sjálfum sé honum ekki hætta búin að ánetjast fíkn dagpeninganna. Það eru bara þeir sem ferðast með honum eða fyrir hann sem eru í áhættuflokki.
Eftiröpun

Hin hliðin á ummælum innanríkisráðherrans veit að þeirri staðreynd að þekking er undirstaða ákvarðana og ríkur þáttur í virku lýðræði. Þungamiðjan í málflutningi andstæðinga frekara Evrópusamstarfs felst í því að önnur miðlun upplýsinga en þeir sjálfir standa fyrir sé landinu hættuleg. Kenningin um dagpeningafíknina er sett fram til að minna á að freistingarnar geta borið skynsemina ofurliði.

Þannig er aðeins unnt að treysta fáum útvöldum til þess að fara til Brussel og meðtaka upplýsingar og miðla til fjöldans án þess að ginningin rugli dómgreindina. Þetta er ekki nýtt í íslenskri pólitík. Sósíalistar gáfu út dagblaðið Þjóðviljann í áratugi. Margir muna þá sögu en aðrir geta lesið sér til fróðleiks að þar var stílæfingum af þessu tagi beint gegn stjórnmálamönnum og embættismönnum sem höfðu samskipti við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins og forystumenn aðildarríkja þess.

Satt best að segja er eftiröpunin oft og tíðum svo nákvæm að spurningar gætu vaknað um höfundarrétt. Samtök um vestræna samvinnu sáu um rekstur upplýsingaskrifstofu fyrir Atlantshafsbandalagið. Á hennar vegum voru skipulagðar fræðsluferðir til höfuðstöðvanna. Andstæðingar Atlantshafsbandalagsins áttu ógjarnan nógu sterk orð til að lýsa því hvernig óvinir þjóðarinnar sem sátu á fleti fyrir suður í Brussel notuðu veislugleðina til að heilaþvo þá sem þar bar að garði.
Á þessum tíma sáu talsmenn sósíalista engan þjóðhollan mann eiga réttmætt erindi til Brussel eða Washington. Engir þóttu halda á sönnum málstað Íslands nema þeir sem andvígir voru samstarfi við vestrænar þjóðir. Nú er þessi sami söngur byrjaður aftur vegna Evrópusambandsins að hálfu leyti undir öfugum pólitískum formerkjum og á síðum þess dagblaðs sem fyrrum var í vörninni andspænis þessum málflutningi.
Góðir Íslendingar

Þó að andstæðingar aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu hafi á sinni tíð talið sjálfum sér trú um að þeir væru þeir einu sem talist gætu góðir Íslendingar keypti þjóðin aldrei þann málflutning. Hvernig kaupin gerast á eyrinni í þeirri umræðu sem nú fer fram er ekki ljóst. En gildi málflutnings af þessum toga er eftir sem áður það sama.

Það er mikið veikleikamerki í málflutningi þeirra sem andvígir eru frekara Evrópusamstarfi að vilja ekki ræða samanburð á hruni krónunnar og vanda evruríkjanna.

Á sama hátt er það veikleiki að geta ekki viðurkennt mótherja sína sem jafn góða Íslendinga. Og innanríkisráðherrann sýndi þriðja veikleikann með því að halda því fram að sumir séu verðugir þess að eiga samtöl í Brussel en aðrir ekki.

Sannarlega getur það verið hluti af mælskulist að slá á strengi tilfinninganna. Það er hins vegar engin list að draga menn í dilka með meðulum eins og öfund og tortryggni.

Í dag þykja ummæli Gríms Thomsen um háskólahugmyndina fálkaleg. Síðar kemur á daginn hvort ummælum innanríkisráðherrans um flugferðir opinberra starfsmanna þykir svipa til valsins þegar hann er kallaður fálki.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Háflug og fullveldi