Tíska og hönnun

Haffi ánægður með Sigrúnu: Gaman að sjá konu klæðast grænu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haffi Haff þekkir tískuna betur en flestir.
Haffi Haff þekkir tískuna betur en flestir. vísir
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknar, var í nokkuð sérstöku viðtali við fréttastofu RÚV í morgun og hefur viðtalið vakið töluverða athygli.

Veðrið á höfuðborgarsvæðinu er sérstaklega fallegt og var Sigrún klædd eftir því. Vorið er á næsta leyti, sólin farin að skína og því var Sigrún í fallegum grænum leðurjakka og einstökum grænum kjól.

„Mér finnst alltaf gaman að sjá íslenskar konur klæðast litum,“ segir Hafsteinn Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, en fáir þekkja tískuna betur en Haffi.

„Græna litnum fylgir heppni,“ segir Haffi og bætir við „hopefully, she will „Get Lucky“

Hér að neðan má sjá gif af því hvernig Sigrún bar sig í Alþingishúsinu í morgun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×