Sport

Hafdís rétt við Ólympíulágmarkið | Bætti Íslandsmetið

Guðmudnur Marinó Ingvarsson skrifar
Hafdís við fyrra Íslandsmet sitt
Hafdís við fyrra Íslandsmet sitt mynd/umfí
Hafdís Sigurðardóttir komst ekki í úrslit á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum en deyr þó ekki ráðalaus og fann sér mót rétt fyrir utan Amsterdam þar sem Íslandsmet hennar féll.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV er í Hollandi að fylgjast með Evrópumótinu og sagði frá þessu á twitter-síðu sinni rétt í þessu.

Hafdís stökk 6,62 og var aðeins 8 sentímetra frá Ólympíulágmarkinu á þessu glæsilega Íslandsmeti sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×