Viðskipti innlent

Hafa keypt Ölvisholt Brugghús

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Gunnlaugsson verður framkvæmdastjóri og einn aðaleigenda nýja félagsins.
Jón Gunnlaugsson verður framkvæmdastjóri og einn aðaleigenda nýja félagsins.
Gengið hefur verið frá kaupum á rekstri og eignum Ölvisholt Brugghúss af þrotabúi. Félagið sem kaupir reksturinn heitir Eignarhaldsfélagið Flóinn ehf.  Að því standa Karl K. Karlsson, Eignarhaldsfélag Suðurlands, Jón E. Gunnlaugsson, Bjarni Einarsson og nokkrir minni fjárfestar.

Í fréttatilkynningu vegna viðskiptanna segir að rekstur hafi verið í lágmarki í brugghúsinu undanfarna mánuði eftir að rekstur félagsins fór í þrot á síðasta ári og Landsbankinn yfirtók rekstur þess eftir algjöran forsendubrest í kjölfar bankahrunsins.

Frá þeim tíma hafa fyrrum eigendur félagsins unnið að endurfjármögnun þess og fengið til liðs áðurtalda aðila.  Karl K.Karlsson hefur lengi starfað með Ölvisholt Brugghúsi og séð um dreifingu á vörum þess á innanlandsmarkaði.

Í fréttatilkynningunni segir jafnframt a Eignarhaldsfélag Suðurlands sé  rekið af sveitarfélögum á Suðurlandi til fjárfestinga í fyrirtækjum á svæðinu og því sé ánægjulegt að sjá að heimamenn vilji sjá áframhaldandi rekstur á þeim grunni sem hafði verið lagður.

Ölvisholt hefur frá byrjun lagt áherslu á útflutning og hefur selt vörur til Svíþjóðar, Kanada og Danmerkur. Vörumerki félagsins, Freyja, Skjálfti, Móri og Lava hafa tryggt sig í sessi á öllum mörkuðum og salan aukist jafnt og þétt frá byrjun.

Stjórn félagsins verður skipuð eftirfarandi:

Arnbjörn Ólafsson, fjármálastjóri Karl K. Karlsson

Þorbjörn Jónsson, f.h. Eignarhaldsfélags Suðurlands

Jón E. Gunnlaugsson, sem einnig verður framkvæmdastjóri félagsins

Valgeir Valgeirsson verður áfram bruggmeistari Ölvisholts.

Markmið Ölvisholts er að kynna bjór sem valkost með góðum mat á góðri stund og ekki síður að kynna fyrir fólki þann óendanlega fjölbreytileika sem bjórgerð býður uppá.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×