Innlent

Hafa ekki fengið fyllilega staðfest hvort skórnir séu Birnu

Atli Ísleifsson skrifar
Allir mögulegir viðbragðsaðilar; björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan, hafa verið boðuð til leitarinnar að Birnu.
Allir mögulegir viðbragðsaðilar; björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan, hafa verið boðuð til leitarinnar að Birnu. Vísir/SÁP
„Við höfum ekki fengið fyllilega staðfest að þetta séu skór frá Birnu. Við erum að vinna í því eins og við getum að staðfesta af eða á með það,“ segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, aðspurður um gang rannsóknarinnar.

Skópar áþekkt því sem Birna klæddist þegar hún hvarf sporlaust á fimmta tímanum síðastliðinn laugardagsmorgun fannst á tólfta tímanum við höfnina í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þeir eru af gerðinni Dr. Martens og svartir að lit. Um mjög vinsæla tegund skóa er að ræða hjá ungu fólki.

Fundað klukkan 9

Fundað verður í stjórnstöð leitarinnar um klukkan 9. „Fljótlega eftir það verðum við með betri upplýsingar um hvernig ætlum að nálgast þetta upp að því marki hvernig við getum talað um það. Fjölmiðlar skilja að við getum ekki upplýst um allar rannsóknaraðgerðir en við getum upplýst að einhverju leyti hvernig leitinni verður háttað.“

Sjá einnig:At­burðir næturinnar: Fundu skó eins og Birna var í en um­fangs­mikil leit við Hafnar­fjarðar­höfn engu skilað

Athygli vakti að snjó var að finna undir skónum þegar þeir fundust við höfnina. Um þrír sólarhringar eru liðnir síðan Birna hvarf og var nokkuð hlýtt á suðvesturhorni landsins á sunnudag. Öllu kaldara var í gær og snjóaði. „Ég tek alveg undir það að það er merkilegt,“ segir Grímur, aðspurður um snjóinn undir skónum.

Skoða eftirlitsmyndavélar

Grímur segir að lögregla sé nú komin á fullt í að skoða eftirlitsmyndavélar á þessu svæði og rannsaka alla möguleika.

Allir mögulegir viðbragðsaðilar; björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan, hafa nú verið boðaðir til leitarinnar að Birnu. Hlé var gerð á leitinni í nótt en henni verður framhaldið í birtingu.

En þetta myndband sem þið birtuð í gær? Hefur fólkið sem birtist þar haft samband við ykkur?

„Það sem mér finnst mikilvægt með þetta myndband, er að þeir sem eru á myndbandinu, að þeir hafi samband við okkur. Þó að við reyndum að vinna myndbandið þannig að fólk þekktist ekki, þá muna menn hvenær þeir voru þarna. Að þeir myndu eitthvað meira og gætu komið upplýsingar til okkar hvort þeir hafi orðið var við eitthvað hjá Birnu. Það var stærsti tilgangurinn, að fá fólk sem var þarna á staðnum að hafa samband við okkur,“ segir Grímur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×