Formúla 1

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Gene Haas ætlar að vera fyrstur til að læra af mistökum annarra.
Gene Haas ætlar að vera fyrstur til að læra af mistökum annarra. Vísir/Getty
Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

Haas F1 liðið mun mæta til keppni 2016. Liðið hefur samið við Ferrari um að fá vélar og tæknilega aðstoð. Haas segist gera sér grein fyrir að liðið gæti átt erfitt í upphafi.

„Ég tel að fyrstu fimm árin muni snúast um að komast af. Ég geri ekki væntingar um að vinna heimsmeistaratitil. Ef við gætum unnið eina keppni á fimm árum myndi ég telja það afar góðan árangur,“ sagði kappakstursmógúllinn Gene Haas í viðtali við CNN.

Þrjú ný lið mættu til leiks árið 2010. Aðeins Marussia hefur náð í stig, HRT hætti keppni 2012 og framtíð Caterham er í upplausn eftir að hluti eigna þess í Bretlandi voru teknar upp í skuldir.

„Ég held að þeirra stærstu mistök séu að hafa viljað komast svo fljótt í kappakstur að þau hafi leitað á náðir samstarfsaðila sem hentuðu kannski ekki og voru mislukkaðir,“ sagði hinn bandaríski Gene Haas.

Hann segir einnig að Ferrari hafi viljað hafa nánara samband. „Við yrðum mjög stolt að vera b-lið Ferrari vegna þess að við myndum réttar aðferðir við rekstur formúluliðs. Í hreinskilni sagt munum við taka þá hjálp sem Ferrari getur veitt okkur, vegna þess að það er enginn betri en Ferrari,“ sagði Haas að lokum.


Tengdar fréttir

Hugsanlega ný lið í Formúlunni árið 2015

Opnað var fyrir umsóknir fyrir ný lið í Formúlu 1 fyrir skemmstu. Tveir aðilar sem sóttu um þykja koma sterklega til greina. Annars vegar Gene Haas og hins vegar rúmenskur umsækjandi sem nýtur stuðnings þarlendra stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×