Enski boltinn

Gylfi og félagar áttu ekki séns í Arsenal | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arsenal valtaði yfir Swansea, 4-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag og áttu Gylfi Þór Sigurðsson og félagar ekki möguleika í skytturnar.

Staðan í hálfleik var 1-0 en Oliver Giroud skoraði eina mark hálfleiksins. Næstu tvö mörk voru sjálfsmörk frá leikmönnum Swansea en það var Alexis Sanchez sem skoraði fjórða og síðasta mark leiksins.

Arsenal er í þriðja sæti deildarinnar með 44 stig, fimm stigum á eftir Chelsea sem er í efsta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×