Viðskipti innlent

Guru Pacino hluti af kynningarherferð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs, og Játvarð Jökul Ingvarsson, framkvæmdastjóra Hringdu ásamt Guru Pacino.
Hér má sjá Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs, og Játvarð Jökul Ingvarsson, framkvæmdastjóra Hringdu ásamt Guru Pacino.
Guru Pacino Datum hélt sinn annan fyrirlestur á Íslandi í húsakynnum Hringdu að Ármúla 23 og uppljóstraði þar boðskap sinn um óendanleikann.

Vísir greindi frá því í dag að óútskýrt og stórundarlegt myndband hafi verið í dreifingu á samfélagsmiðlum síðustu daga af manni sem kallar sig Guru Pacino Datum.

Tæplega 50 manns mættu á viðburðinn og spjölluðu við manninn um óendanleikann og fengu mynd af sér með honum.

Sjá einnig: Guru Datum slær í gegn á netinu

Hinn endalausi kærleikur, óendanlegi skilningur og eilífa áhyggjuleysi sem gúrúinn boðaði reyndist síðan vera hluti af kynningarherferð Hringdu á interneti með ótakmörkuðu gagnamagni. 

Hér má sjá hópmynd frá kvöldinu.vísir/aðsend

Tengdar fréttir

Guru Datum slær í gegn á netinu

Í myndbandinu, sem minnir einna helst á atriði úr gamanþáttaröðinni The Office, sést Datum á kynningarfundi með fólki um óendanleikann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×