Fótbolti

Gunnhildur skoraði í góðum sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Gunnhildur Yrsa var á skotskónum í dag
Gunnhildur Yrsa var á skotskónum í dag vísir/vilhelm
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði eitt marka Stabæk sem lagði Klepp 4-1 í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jón Páll Pálmason þjálfari lið Klepp og sá hann lið sitt komast yfir strax á 5. mínútu og halda forystunni út fyrri hálfleikinn.

Það tók Stabæk aðeins stundarfjórðung að komast í 3-1 í seinni hálfleik og skoraði Gunnhildur þriðja markið. Sautján mínútum fyrir leikslok gulltryggði Ida Enget sigur Stabæk.

Stabæk lyfti sér með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 37 stig en Klepp er í 9. sæti með 19 stig, 12 stigum frá fallsæti þegar níu stig eru í pottinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×