Handbolti

Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk í tapi gegn Kiel

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gunnar Steinn í leik með Gummersbach.
Gunnar Steinn í leik með Gummersbach. vísir/getty
Kiel byrjar á sigri í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en Kiel bar sigurorð af VfL Gummersbach 30-26 á útivelli.

Kiel byrjaði af miklum krafti og var komið í 5-1 eftir rúmar átta mínútur. Staðan eftir rúman stundarfjórðung var svo 8-3, en í hálfleik leiddu meistararnir með tveimur mörkum 14-12.

Þeir héldu forystunni út allan síðari hálfleikinn þrátt fyrir áhlaup frá heimamönnum í VfL Gummersbach. Lokatölur fjögurra marka sigur Kiel, 30-26.

Gunnars Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach, en markahæstur heimamanna var Julius Kuhn. Domagoj Duvnjak og Rune Dahmke voru markahæstir hjá Kiel með sex mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×