Handbolti

Gunnar Steinn og Ólafur markahæstir í sigri sænsku meistaranna

Guðmundur Mairnó Ingvarsson skrifar
Ólafur hefur gert það gott í Svíþjóð
Ólafur hefur gert það gott í Svíþjóð mynd/kristianstad
Gunnar Steinn Jónsson skoraði 8 mörk og Ólafur Guðmundsson 7 þegar Kristianstad lagði Ystads 30-25 í annarri umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi.

Kristianstad sem á titil að verja í Svíþjóð hefur farið vel af stað í deildinni og unnið báða leiki sína.

Ólafur Guðmundsson er fyrirliði liðsins en að auki leikur Arnar Freyr Arnarsson með liðinu. Arnar náði ekki að skora í gær en fékk gult spjald í leiknum.

Ystads var 14-13 yfir í hálfleik og var jafnræði með liðunum lengi framan af en Kristianstad var sterkari aðilinn síðasta stundarfjórðunginn sem tryggði liðinu sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×