Innlent

Gunnar Páll með sex milljónir á ári fyrir stjórnarsetu

Gunnar Páll Pálsson.
Gunnar Páll Pálsson.

Gunnar Páll Pálsson formaður VR þáði 6,2 milljónir króna fyrir að sitja stjórnarfundi hjá gamla Kaupþingi á síðasta ári. Það er litlu minna en þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup. Siðfræðistofnun varaði við því fyrir fjórum árum að formaðurinn sæti í stjórn hlutafélags, eins og Kaupþings - það gæti stefnt trúverðugleika hans í hættu.

Gunnar Páll Pálsson liggur undir þungu ámæli fyrir að hafa setið í stjórn Kaupþings - sem fulltrúi Lífeyrissjóðs VR - og tekið þátt í því í septemberlok að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna sem höfðu keypti hluti í bankanum og tekið til þess lán. Eins og fram hefur komið er búið að lýsa því yfir að sú ákvörðun standi ekki - og starfsmenn eins og aðrir munu borga af sínum lánum.

Engu að síður hefur þátttaka Gunnars Páls vakið mikla reiði. Fyrir fjórum árum óskaði Gunnar Páll eftir því að Siðfræðistofnun skoðaði ofan í kjölinn siðferðileg álitaefni um stjórnarsetu fulltrúa VR í hlutafélögum. Markmiðið var meðal annars að skoða hvort hlutverk Gunnars Páls sem verkalýðsleiðtoga, stjórnarmanni í Lífeyrissjóði verslunarmanna og stjórnarmanni í Kaupþingi stönguðust á. Niðurstaða skýrslunnar er býsna skýr. Þar segir meðal annars að trúverðugleiki formanns VR sé í hættu ef hann tengist ákvörðunum stjórnar félagsins sem hugsanlega eru óvinsælar meðal launafólks.

Þessi viðvörun Siðfræðistofnunar hefur aldeilis komið á daginn. Þá hafði formaðurinn einnig fjárhagslegan hag af því að sitja í stjórn Kaupþings. Á síðasta ári þáði Gunnar Páll 6,2 milljónir fyrir að sitja stjórnarfundi. Það gera 516.000 krónur á mánuði fyrir að sitja eins og einn stjórnarfund. Í mars á þessu ári var ákveðið að laun stjórnarmanna yrðu 400 þúsund fyrir hvern bankastjórnarfund og 150.000 á mánuði fyrir hvern stjórnarnefndarfund. Ekki hefur fengist staðfest að Gunnar Páll hafi setið í stjórnarnefnd.

Ef svo er, hefur hann fengið 550.000 kr. á mánuði frá mars síðastliðnum. Til samanburðar má geta þess að þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup rétt rúmlega 560.000 krónur.

Gunnar Páll er nú staddur á trúnaðarmannafundi VR þar sem hann útskýrir mál sitt.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×