Sport

Gunnar fékk tæpar sex milljónir í bónus

Henry Birgir Gunnarsson í Dublin skrifar
Gunnar gat leyft sér að brosa í kvöld.
Gunnar gat leyft sér að brosa í kvöld. vísir/getty
Gunnar Nelson og Conor McGregor fengu peningaverðlaun í kvöld fyrir bestu frammistöðu kvöldsins.

Báðir fá þeir rúmar 5,7 milljónir króna í sinn hlut og það hlýtur að kallast gott dagsverk.

Klappað var fyrir þeim báðum á fundinum áðan enda kláruðu þeir báðir sína bardaga með stæl.

Heimamenn hæstánægðir enda unnu allir þeirra menn sem og hinn ættleiddi sonur Dublin, Gunnar Nelson.

MMA

Tengdar fréttir

Hugsa að þakið fari af húsinu

Gunnar Nelson er öruggur og yfirvegaður að venju fyrir bardaga kvöldsins í Dyflinni. Hann fær mikinn stuðning frá heimamönnum og Gunnar segir góðar líkur á því að bardaginn klárist í fyrstu lotu.

Gunnari skutlað 100 metra í rútu

Strákarnir sem taka þátt í bardagakvöldinu í 02 Arena í kvöld eru svo lánsamir að gista í næsta húsi og þurfa því ekki að ferðast langt á keppnisstað.

Utan vallar: Töffarinn Dana White

Maðurinn á bakvið velgengni UFC er forseti sambandsins, Dana White. Hann hefur búið til afþreyingarefni í heimsklassa og það sem hann gerir virkar. Já, og reyndar rúmlega það enda er íþróttin að ná ævintýralegum vinsældum um allan heim og sér ekki fyrir endann á því.

Gunnar: Maður beið eftir að þakið myndi fljúga af

Valtýr Björn Valtýsson mætti á Partývaktina á Bylgjunni í kvöld ásamt Brynjari Hafsteinsyni frá MMA-Fréttum og lýsti sigri Gunnars Nelson á Zak Cummings í UFC í kvöld og hringdi í kappann sem var að vonum kátur.

Hlakka til að djöflast í honum

Gunnar Nelson er klár í slaginn fyrir kvöldið og hann fór um víðan völl í ítarlegu viðtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×