Sport

Gunnar fær líklegast bara einn bardaga til viðbótar í ár

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gunnar í bardaganum gegn Brandon Thatch.
Gunnar í bardaganum gegn Brandon Thatch. Vísir/Getty
Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson, segir allar líkur á að Gunnar muni aðeins berjast einu sinni til viðbótar á árinu. Markmiðið hafi verið að ná tveimur bardögum en tíminn sé einfaldlega að renna út.

Aðeins tveir mánuðir eru síðan Gunnar vann glæsilegan sigur á Brandon Thatch á UFC 189-bardagakvöldinu í Las Vegas en Gunnar var þar að þreyta frumraun sína í Bandaríkjunum. Óhætt er að segja að Gunnar hafi stimplað sig með látum inn á bandaríska markaðinn en hann hengdi Thatch í fyrstu lotu.

Haraldur staðfesti að markmiðið hefði verið að berjast tvisvar til viðbótar og að draumurinn væri að berjast fyrst í Dublin og síðar meir í Las Vegas á bardagakvöldi Conors.

Gunnar langaði í þrjá bardaga á árinu

„Gunnar vildi helst berjast tvisvar til viðbótar í ár, hann langaði að ná þremur bardögum á þessu ári en því miður er afar lítið sem bendir til þess að það náist. Hugmyndin var að hann myndi berjast í Dublin og ef allt gengi að óskum þar myndi hann berjast í öðrum bardaga í lok ársins. Það var ekki búið að staðfesta bardaga Conors og Aldo á þeim tíma en eftir að það kom í ljós þá er náttúrulega eftirsóknarvert að vera þar.“

Haraldur tók undir orð Jóns Viðars Arnþórssonar sem sagði í viðtali við mmafréttir sem sagði á dögunum að það væri erfitt að finna mótherja fyrir kvöldið í Dublin en Gunnar stefndi að því að berjast gegn aðila í efstu tíu sætum styrkleikalistans.

„Það er ekki kominn neinn andstæðingur fyrir Dublin og það er ekkert sem við erum með fast í hendi þar. Það lítur ekki of vel út eins og staðan er í dag. Það er búið að leggja til nokkra andstæðinga en við erum að reyna að horfa á efstu tíu mennina fyrir næsta bardaga.“

MMA

Tengdar fréttir

Sjáðu Gunnar Nelson hengja Thatch

Gunnar Nelson stimplaði sig inn í Bandaríkjunum með látum þegar hann pakkaði Brandon Thatch saman á UFC189.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×