Handbolti

Gummi: Var aldrei rólegur í seinni hálfleik

Arnar Björnsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson segir að sigur Dana á Slóvenum hafi verið gríðarlega þýðingarmikill.  Danir eru öruggir með að spila um sæti á Ólympíuleikunum í Brasilíu á næsta ári.  Danir mæta Króötum á morgun um 5. sætið á HM.

„Þetta var mjög erfitt. Þegar liðin eru búin að spila svona marga leiki þá þeir oft svolítið sérstakir og kaflaskiptir. Við byrjuðum illa og það tók okkur 10 til 12 mínútur að komast inn í leikinn. Svo skorum við 7 mörk í röð, Landin varði þrjú skot í röð og við náðum forystunni og brutum ísinn.

Það er auðvitað gríðarlega mikið í húfi því með þessum sigri erum við búnir að tryggja okkur möguleikann á því að komast á Olympíuleikana.  Öll liðin vissu hve mikilvægur þessi leikur var. Gegn Króötum á morgun getur allt gerst því það veit enginn ennþá hvort það verða sjö lið sem fá tækifæri til þess að komast á Olympíuleikana eða ekki. En við erum búnir að tryggja okkur áfram og það verður ekki af okkur tekið.“

Guðmundur segir að leikurinn hafi verið erfiður.

„Við spiluðum vel í sókninni, skoruðum 36 mörk en varnarleikurinn í seinni hálfleik var mjög erfiður og lítil markvarsla“.

Varstu farinn að halda að þetta yrði endurtekning á Argentínuleiknum?

„Ég verð að játa það að ég var aldrei rólegur í seinni hálfleik. Við náðum ekki að standa vörnina og fengum ekki markvörsluna sem við þurftum. Þetta tvennt var ekki í nógu góðu standi í seinni hálfleik.“

Hægri vængurinn ykkar, Lasse Svan og Mads Christiansen, var frábær í kvöld?

„Það er nú ekki oft sem maður sér leikmann skora 13 mörk úr jafnmörgum skotum. Þetta er bara gjörsamlega stórkostlegt. Mads Christiansen var mjög öflugur og var að mata hann. Ég skipti venjulega hornamönnun inná í hálfleik en ákvað að gera það ekki núna því ég fann að þetta var hans dagur“.

En af því að leikurinn var í járnum að þá gastu ekki gert þær skiptingar sem þú hefðir viljað?

„Nei, ég verð bara að viðurkenna það.  Mér fannst leikurinn það erfiður að ég þorði ekki að taka þá áhættu“.

Þið mætið Króötum strax á morgun og þú getur ekki dundað við það fram á morgun að skoða þennan leik?

„Nei það er rétt hjá þér ég verð bara að vaða í Króataleikinn einn tveir og bingó. Ég á fríska menn sem geta hjálpað á morgun. Ég vildi umfram allt endilega vinna þennan leik og ég lagði mikið í hann. Við vonum að það verði nógu mikill kraftur í mönnum að vinna leikinn á morgun“.

Seturðu leikinn á morgun þannig upp að leikmennirnir eigi að njóta þess að spila eða gefur þú allt í hann?

„Ég vil endilega vinna hann, ekki spurning og við leggjum allt það sem við getum í hann“.


Tengdar fréttir

Skoraði 13 mörk úr 13 skotum

Lasse Svan Hansen var frábær í kvöld þegar Danir unnu Slóvena 36-33. Hann skoraði mörk í öllum regnbogans litum og þegar alls 13 úr jafnmörgum skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×