Handbolti

Guif vann ellefta leikinn í röð

Kristján Andrésson, þjálfari Guif.
Kristján Andrésson, þjálfari Guif. mynd/guif
Eskilstuna Guif vann nauman sigur á Redbergslids IK í átta liða úrslitum sænsku deildarinnar í handbolta í dag. Sigurinn í dag var sá ellefti í röð hjá Guif.

Guif sigraði alla þrjá leiki liðanna á tímabilinu og héldu margir að deildarmeistararnir ættu ekki í vandræðum með Redbergslids sem enduðu í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.

Guif var fimm mörkum yfir í hálfleik í stöðunni 17-12 en gestirnir í Redbergslids gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í eitt mark áður en leiknum var lokið.

Heimir Óli Heimisson var að vanda í liði Guif og setti hann eitt mark í leiknum. Liðin mætast aftur á heimavelli Redbergslids á miðvikudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×