Lífið

Guðni með í gríninu sem allir eru að hneykslast á

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, telur að fólk sé að gera veður úr engu enda hafi forsetinn verið með í ráðum.
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, telur að fólk sé að gera veður úr engu enda hafi forsetinn verið með í ráðum.
Ljósmynd sem Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, deildi á Twitter aðgangi sínum í gærkvöldi gengur nú eins og eldur í sinu um Internetið. Á myndinni má sjá Andrés Inga ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands í veislu á Bessastöðum. Fyrir aftan þá félaga má sjá Ástu Guðrúnu Helgadóttur, þingmann Pírata, bregða á leik og gera svokölluð kanínueyru á forsetann.

Sitt sýnist hverjum og hafa ýmsir verið iðnir við að gagnrýna prakkaraskap Ástu Guðrúnar á samfélagsmiðlum í dag. Grínið var þó gert með fullri vitneskju forsetans og tók Guðni virkan þátt til að gera myndina sem skemmtilegasta.

„Þessi mynd er náttúrulega gott sem sviðsett. Guðni beygði sig niður svo ég myndi alveg örugglega ná þessu almennilega,“ segir Ásta Guðrún í samtali við Vísi.

Þannig að Guðni var með í brandaranum?

„Já sem gerir þetta svona fyndið.“

Vísir/Skjáskot
Áhugavert að vera ekki manneskja lengur

Ásta segist þó hin rólegasta yfir öllum æsingnum.

„Það er svolítið áhugavert að sumir líta ekki á mig sem manneskju lengur, en þess fyrir utan er þetta bara fyndið,“ segir Ásta Guðrún og vísar þar í færslu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. 

„Þessi einkennilega vera, sem er fyrir aftan þingmanninn og forsetann, er væntanlega frá Geimvísindastofnun Evrópu?“ skrifaði Hannes.

Það eru fleiri en Hannes sem hafa furðað sig á glensi þríeykisins í dag. Meðal þeirra er Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsókanr og Flugvallarvina.

„Ef þetta er virðingin fyrir forsetanum , forsetaembættinu og þingmanninum þá þarf ekki bara Guð að blessa Ísland, heldur þjóðin öll að vakna af meðvirknisdraumnum,“ skrifar Sveinbjörg.

Þá er ekki farið fögrum orðum um Ástu Guðrúnu á Facebook hópnum Pírataspjallið. Þar er hún meðal annars kölluð “Mesti fáviti Íslandssögunnar”



Missir ekki svefn

Aðspurð hvort hún hafi orðið fyrir miklu áreiti vegna uppátækisins í dag segir Ásta svo ekki vera.

„Bara það sem fólk er að setja á Facebook. En ég missi nú ekki svefn yfir því. Ég held að fólk sé að gera aðeins of mikið mál úr þessu,“ segir Ásta.

„Þetta var allt í góðu gert. Ég var bara í samsæri með forsetanum og Andrési í þessu.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×