Fótbolti

Guðmundur og félagar gerðu jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
KSÍ/Hilmar Þór
Sarpsborg 08 gerði jafntefli við odd Ballklubb í norsku úrvalsdeildinni í dag þar sem Guðmundur Þórarinsson var í eldlínunni.

Kjetil Berge kom Sarpsborg yfir eftir sex mínútna leik, en Jone Samuelsen jafnaði metin fjórum mínútum síðar. Kosta-Ríka maðurinn Alejandro Castro kom Sarpsborg aftur yfir, en Herolind Shala jafnaði metin fyrir Odd tíu mínútum fyrir leikslok.

Þannig urðu lokatölur og Odd Ballklubb er enn í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Molde sem á leik til góða.

Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Sarpsborg sem situr í níunda sæti deildarinnar, sex stigum fyrir ofan fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×