Handbolti

Guðmundur Árni: Fór beint að vinna í fjölskyldufyrirtækinu þegar ég kom heim

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Árni í leik með Haukum.
Guðmundur Árni í leik með Haukum. vísir/valli
Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson genginn í raðir Hauka og mun leika með liðinu í Olís-deildinni í vetur.

Guðmundur lék í Danmörku á árunum 2011-16, fyrst með Bjerringbro/Silkeborg og svo með Mors-Thy.

„Þau tilboð sem mér bárust erlendis frá voru ekki áhugaverð og þá vildi ég frekar koma heim,“ sagði Guðmundur Árni í samtali við Vísi um ástæðu heimkomunnar.

„Það voru bara tvö félög sem komu til greina hér á landi; Selfoss og Haukar. Mér tókst svo að semja við Hauka og skrifaði undir í dag,“ sagði Guðmundur Árni sem er uppalinn á Selfossi.

Hornamaðurinn knái þekkir vel til hjá Haukum en hann lék með liðinu 2009-11 og vann þrefalt fyrra tímabilið sitt á Ásvöllum.

„Þetta eru allt góðir félagar mínir og svo þekki ég Gunna [Magnússon, þjálfara Hauka] líka úr landsliðinu þegar hann var með Aroni Kristjánssyni,“ sagði Guðmundur Árni. En hafa þessi félagaskipti áhrif á stöðu hans í landsliðinu?

Guðmundur Árni í landsleik gegn Portúgal í janúar á þessu ári.vísir/anton
„Það er ekki mitt að meta það. Ég er allavega ánægður með þessi skipti,“ sagði Guðmundur Árni sem hefur leikið 13 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Haukar eru ríkjandi Íslandsmeistarar og stefnan er að vanda sett hátt á Ásvöllum.

„Það hefur alltaf verið krafa í Haukum að berjast um alla titla,“ sagði Guðmundur Árni sem hefur haft nóg fyrir stafni í sumarfríinu sínu.

„Þetta var lítið sumarfrí sem ég fékk. Fjölskyldan mín er með ferðaþjónustu á Selfossi og um leið og kom heim fór ég beint að vinna, eins og öll önnur sumur,“ sagði Guðmundur en að hans sögn er nóg að gera í ferðamannabransanum.

Hann ætlar að sjálfsögðu að kíkja á völlinn í kvöld og sjá Selfoss spila við Val í undanúrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta.

„Þetta verður veisla og vonandi fáum við góðan leik,“ sagði Guðmundur Árni að endingu.

Leikur Selfoss og Vals hefst klukkan 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×