Guðmundur: Sorglegt að klúðra öllum þessum færum Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar 24. janúar 2012 17:46 Guðmundur lét vel í sér heyra á hliðarlínunni. mynd/vilhelm
Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson var þungur á brún eftir tapið gegn Spáni og svekktur því honum fannst að íslenska liðið hefði getað gert betur í leiknum. "Þetta var mjög erfið byrjun og hún fór illa með okkur. Það er erfitt að vinna upp sjö marka forskot gegn Spáni. Mér fannst við þó berjast og gefa allt í þetta. Við náðum að koma okkur inn í leikinn og munurinn fjögur mörk í hálfleik. Sá munur hefði verið minni ef við hefðum nýtt dauðafærin okkar betur. Svo förum við með víti, fáum á okkur ruðninga og köstum frá okkur boltanum," sagði Guðmundur. "Þetta er svolítið sorglegt ef maður horfir á fyrri hálfleikinn. Við erum fjórum undir en klúðrum fullt af færum. Ef við hefðum nýtt helminginn af því værum við inn i leiknum af fullum krafti. "Í síðari hálfleik fannst mér við fá tækifæri til þess að komast aftur inn í leikinn. Bjöggi að verja vel og vörnin að standa vel. Þá hentum við frá okkur boltanum, hirtum ekki fráköst og misnotum dauðafæri. Heilt yfir er leikurinn ekki nægilega góður af okkur hálfu og sérstaklega sóknarlega. "Ég er samt ánægður með baráttuna því mér fannst drengirnir aldrei gefast upp. Það var bara haldið áfram," sagði þjálfarinn en hann grét öll töpuðu færin. "Það munar bara fimm mörkum í leikslok og ég held að við klúðrum að minnsta kosti tólf dauðafærum í bland við alla tæknifeilana. Það er sorglegt að vita til þess að við hefðum getað gert ýmislegt ef við hefðum nýtt færin og fækkað þessum feilum." Guðmundur er verulega ánægður með innkomu nýliðanna sem hafa minnst hraustlega á sig á þessu móti. "Ég er mjög ánægður með það. Þeir hafa komið skref fyrir skref inn í þetta hjá okkur og búnir að kynnast vinnubrögðunum. Ég er ánægður hvernig þeir koma svo inn núna. Við skulum sjá á morgun hvort þeir fái ekki fleiri tækifæri," sagði þjálfarinn sem ætlar samt að gefa allt svo Ísland vinni leikinn. "Við ætlum að standa okkur í leiknum gegn Frökkunum en hann verður mjög erfiður. Ég held að þetta verði leikur sem skiptir öllu máli fyrir Frakka. Þá verður hann erfiðari fyrir vikið. Við ætlum að mæta, standa okkur og spila góðan handbolta."
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira