Guðmundur: Ekki veikur hlekkur hjá Spánverjum Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar 24. janúar 2012 07:00 Guðmundur Guðmundsson segir nýliðanum Rúnari Kárasyni til í leiknum á móti Ungverjum á sunnudaginn. Mynd/Vilhelm „
Ég held að þetta sé besta liðið eins og staðan er í dag. Þeir eru taplausir og hafa sýnt ótrúlegan styrk. Það er ekki til veikur hlekkur í þessu liði. Hvorki í sókn, vörn né markvörslu. Við þurfum að eiga toppleik til þess að eiga möguleika," sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson um andstæðing dagsins á EM, Spánverja. Liðin mættust einnig á HM fyrir ári síðan og þá fór spænska liðið illa með strákana okkar. „Við þurfum að gera miklu betur en þá. Við gerðum marga tæknifeila í þeim leik og þeim verður að fækka. Við verðum að vera klókir í sókninni. Ég veðja á að þeir byrji í 5/1 vörn gegn okkur. Það gerðu þeir í fyrra og við leystum það mjög illa." Ástandið á hópnum er ekki nógu gott en fjórir leikmenn eru að glíma við meiðsli. Alexander Petersson, Aron Pálmarsson og Þórir Ólafsson hvíldu á æfingu í gær en Arnór Atlason æfði þó svo hann sé slappur. „Ástandið hefur verið betra. Þeir höfðu gott af því að hvíla, strákarnir en Arnór er ótrúlegur og vildi æfa. Það er seigt í honum. Strákunum verður tjaslað saman en Alexander byrjar á bekknum. Hann getur vonandi hjálpað okkur samt," segir Guðmundur. Það tekur gríðarlega á að taka þátt í stórmóti. Gildir það fyrir alla sem að liðinu koma enda unnið myrkranna á milli. Mátti sjá í gær að margir væru orðnir svolítið þreyttir. „Þetta tekur á. Þegar maður sér sjálfan sig á hliðarlínunni þá hugsar maður að það sé ekki skrítið að maður sé þreyttur," segir Guðmundur og hlær við. „Ég var nánast kominn inn í vörnina gegn Ungverjum. Ég hefði alveg getað slappað af undir lokin en var kominn í fíling."
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira