Handbolti

Guðjón Valur skoraði eitt í 25. sigri Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur í leik með Barcelona.
Guðjón Valur í leik með Barcelona. vísir/getty
Barcelona er spænskur meistari í handbolta sjötta árið í röð, en þeir unnu tíu marka sigur á Ademar León í kvöld, 37-27.

Heimamenn í Barcelona skoruðu fyrstu fjögur mörkin og voru strax komnir sex mörkum yfir eftir tuttugu mínútur. Þeir leiddu 19-11 í hálfleik.

Í síðari hálfleik varð engin spenna og sigurinn var alltaf öruggur, en að endingu varð munurinn tíu mörk; 37-27.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði eitt mark í fimm skotum, en Kiril Lazarov var markahæstur með sjö mörk.

Barcelona hefur unnið alla 25 leiki sína í deildinni á tímabilinu, en þeir eru með 11 stiga forskot á Naturhouse La Rioja þegar fimm leikir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×