Handbolti

Guðjón Valur: Heilsa stráksins míns mikilvægari en handbolti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Guðjón Valur og hinir strákarnir í landsliðinu þurftu að gefa mótshöldurum handarfarið sitt hér í Katar.
Guðjón Valur og hinir strákarnir í landsliðinu þurftu að gefa mótshöldurum handarfarið sitt hér í Katar. Vísir/Eva Björk
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsin, var kátur þegar Vísir hitti á hann á hóteli íslenska liðsins hér í Doha í Katar.

„Þetta er fínt hótel. Maturinn er góður og hér er allt í góðum gír held ég. Það er engin ferðaþreyta í okkur - við erum bæði búnir að sofa vel og æfa,“ sagði hann en viðtalið má heyra í heild sinni hér fyrir ofan.

Guðjón Valur missti af æfingamótinu í Danmörku og Svíþjóð um síðustu helgi þar sem að hann þurfi að fara til síns heima í Barcelona með skömmum fyrirvara vegna veikinda sonar síns.

„Þetta er alls ekki tilvalin undirbúningur en þetta er annað skiptið í röð sem ég lendi í þessu. Ég var meiddur fyrir EM í Danmörku í fyrra og tók bara síðustu æfinguna fyrir mót áður en ég spilaði svo mótið,“ segir hann.

„En sonur minn lá veikur á spítala og ég sagði að ég kæmi ekkert fyrr en að hann kæmi út. Aðstæður eru þannig - maður forgangsraðar í lífinu og börnin og fjölskyldan eru mér mikilvægari en handboltinn. En ég náði samt að æfa alla daga þó svo að ég hafi ekki verið í handbolta.“

„Ég veit hvaða starf ég á að vinna og hvað ég á að gera. Við höldum því áfram eins og hingað til,“ segir hann og bætir við að drengnum heilsast vel.

Guðjón Valur svaraði einnig spurningum um sænska liðið en Ísland mætir Svíum í fyrsta leik Íslands í keppninni á morgun.

„Það fylgir því alltaf sérstakur fiðringur að spila við hinar Norðurlandaþjóðirnar og Svíar eru með gott lið. Þetta eru hraðir leikir og ofsalega gaman að spila við Svía þó svo að þeir séu erfiðir við að eiga.“

Hann segir að vægi leiksins sé mikið, enda fyrsti leikurinn í riðlinum. „Það er klárt mál að við erum að berjast við Svía um sæti þó svo að við teljum okkur geta unnið alla - líka Frakka. En það er gríðarlega mikilvægt að koma sterkt inn í mót og senda ákveðin skilboð. Það viljum við gera með því að vinna Svía sem er spáð góðu gangi.“

„Við viljum stuða þá og láta þá horfa í rassgatið á okkur heldur en að við séum að elta þá.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×