Grískur harmleikur

Fréttablaðið Viðskipti erlent 22. febrúar 2012 04:30
Grískur harmleikur
Margir önduðu léttar eftir að víðtækri endurskipulagningu skulda og efnahags Grikklands lauk á dögunum eftir þriggja ára karp. Niðurstaða Grikklands, lánardrottna þeirra, Seðlabanka Evrópu, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er auðvitað gríðarlega íþyngjandi fyrir almenning í Grikklandi, sem sýpur nú seyðið af flónsku og undirferli þeirra sem hafa stýrt ríkinu síðustu árin og áratugina.

Í ljósi stöðunnar er þó fátt annað sem kemur til greina. Skuldirnar eru til staðar, en fjármunir ekki og gjalddagi nálgast óðfluga. Greiðslufall er valmöguleiki, en varla fýsilegri en nýja samkomulagið, þar sem það fæli í sér enn meira atvinnuleysi, fleiri gjaldþrot og almenna félagslega nauð, að ótöldum áhrifunum sem það gæti haft á fjármálalíf Evrópu og heimsins.

Lánardrottnar Grikklands hafa samið um allt að 70% niðurfærslu skulda á næstu árum og áratugum, til að landið muni geta ráðið við skuldir og ESB, AGS og Seðlabanki Evrópu hafa lánað Grikklandi 130 milljarða evra til viðbótar við þá 110 milljarða sem Grikkland hefur þegar fengið að láni.

Svik fyrri stjórna og getuleysi síðustu stjórnar hafa eðlilega skapað vafa um efndir á samningum og því eðlilegt að samkomulagið feli í sér einhvers konar eftirlit til að tryggja að allt fari ekki aftur í sama farið.
Þau sem bera hitann og þungann af öllu þessu máli er hins vegar gríska þjóðin og hennar er harmurinn og hún má ekki gleymast. Aðhaldsaðgerðirnar sem fram undan eru verða allar á herðum almennings, sem hefur verið dreginn í gegnum svaðið í umræðu síðustu missera. Grikkir hafa verið sagðir latir, sérhlífnir skattsvikarar, en eins og með allar slíkar alhæfingar byggjast þær á samspili fordóma og vanþekkingar. Rannsókn frá árinu 2009 sýnir að Grikkir unnu að meðaltali 40 stundir á viku sem var meira en tíðkast í ESB og umtalsvert meira en í löndum eins og Frakklandi, Þýskalandi og Hollandi. Stærsta vandamálið er að stóreignafólk og fyrirtæki svíkjast undan samfélagslegri skyldu sinni og ábyrgð með undanskotum frá skatti í stað þess að leggja sitt af mörkum til að byggja þjóðfélagið upp að nýju.

Margir kerfisbundnir þættir liggja að baki núverandi ástandi þar sem helst má kenna um lýðskrumurum sem segja allt og gera allt til að komast til valda og sitja þar sem lengst. Vera Grikklands í evrusamstarfinu gerði stjórnmálamönnum svo auðveldara um vik að breiða yfir raunveruleg vandamál þar til að orðið var um seinan.

Nú, þegar samkomulag um næstu skref er í höfn, ríður á að stjórnmálamenn í Grikklandi sýni dug og forgangsraði með þeim hætti í ríkisfjármálum að hægt sé að stuðla að uppbyggingu og endurreisn Grikklands án þess að reisn borgaranna sé fyrir borð borin.

Fleiri fréttir - Viðskipti erlent

Viðskipti erlent 24. maí. 2012 08:56

Hewlett Packard rekur 27 þúsund starfsmenn

Tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Hewlett Packard hyggst segja upp 27 þúsund starfsmönnum...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 22:00

Vekur upp spurningar um framtíð fjármálakerfisins

Gríðarlegt tap sem bandaríski bankarisinn JPMorgan Chase tilkynnti nýverið um hefur sett u...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 15:30

Yfirhönnuður Apple sleginn til riddara

Jonathan Ive, yfirhönnuður Apple, má frá og með deginum í dag kalla sig Sir Jonathan Ive, ...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 13:24

Papademos: Fyrir alla muni haldið ykkur við áætlunina!

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, segir að Grikkir verði, fyrir al...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 08:49

Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér

Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins u...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 11:37

Dyr að opnast inn á stærsta farsímamarkað heims

Markaðurinn fyrir smáforrit (App) í snjallsíma hefur stækkað ógnarhratt síðustu misseri, e...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 11:02

OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu

Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekk...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 08:47

Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum

Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðs...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 21:21

Google Chrome er vinsælasti vafri veraldar

Nýjustu netmælingar fyrirtækisins StatCounter gefa til kynna að Chrome, netvafri tæknirisa...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 20:30

Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley

Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Faceboo...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 13:58

Skemmtigarðastríð í uppsiglingu

Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 10:25

Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir

Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyr...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 08:52

Danir auka þjónustu við BRIC-löndin

Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 23:41

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evró...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 09:54

Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur"

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það h...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 14:00

Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola

Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúk...  

Meira
Viðskipti erlent 19. maí. 2012 12:38

Skuldastaða evruríkjanna aðalviðfangsefnið

Búist er við því að skuldastaða evruríkjanna verði aðalviðfangsefni leiðtoga átta helstu i...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Skoðun

Kynfæri keisarans

Kynfæri keisarans

Sif Sigmarsdóttir
Ég elska mat,“ sagði tónlistarmaðurinn Bryan Ferry er ég tók við hann viðtal í tilefni tónleika han...

Skoðun

Hin

Hin "sterka vísindahyggja“

Ólafur Þ. Stephensen
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðustu viku, í framh...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti erlent / Grískur harmleikur