Körfubolti

Grindvíkingar ekki lengi að finna nýjan þjálfara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni stýrir Grindavíkurliðinu út tímabilið.
Bjarni stýrir Grindavíkurliðinu út tímabilið. mynd/grindavík
Grindavík var ekki lengi að finna nýjan þjálfara fyrir kvennalið félagsins.

Björn Steinar Brynjólfsson sagði upp störfum eftir tap Grindavíkur fyrir Stjörnunni í gær en hann tók við liðinu fyrir tímabilið.

Nú í kvöld var svo greint frá því að Bjarni Magnússon væri tekinn við Grindavíkurliðinu sem hefur farið illa af stað í Domino's deildinni.

Samningur Bjarna gildir út tímabilið. Fyrsti leikur Grindvíkinga undir hans stjórn er gegn Njarðvík í Maltbikarnum á sunnudaginn.

Bjarni var síðast við stjórnvölinn hjá karlaliði ÍR. Hann er einnig aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×