Körfubolti

Grindavíkurkonur í sömu vandræðum og Valskarlarnir voru fyrr í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingunn Embla Kristínardóttir og félagar í Grindavík hafa spilað án bandarísks leikmanns frá áramótum.
Ingunn Embla Kristínardóttir og félagar í Grindavík hafa spilað án bandarísks leikmanns frá áramótum. Vísir/Stefán
Íslensk félög hafa mörg lent í vandræðum að undanförnum með að fá keppnisleyfi fyrir bandarísku leikmennina sína og síðasta félagið í vandræðum er kvennalið Grindavíkur.

Hin bandaríska Angela Rodriguez var fengin til liðsins til að leysa af Ashley Grimes eftir að Grimes tilkynnti óvænt rétt fyrir áramót að hún myndi ekki koma aftur til Íslands.

Angela Rodriguez er löngu komin til landsins en Grindavík hefur ekki enn fengið keppnisleyfi fyrir hana. Angela hefur þurft að horfa á síðustu leiki Grindavíkur sem allir hafa tapast.  

„Við erum að bíða eftir að fá þýskt sakavottorð sem þarf að fylgja atvinnuleyfisumsókn Rodriguez, en hún spilaði í þýsku deildinni tímabilið 2015-2016,“ segir Lórenz Óli Ólason, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í samtali við Víkurfréttir.

Það er því enn óvíst hvort að Angela Rodriguez verði búin að fá leyfi fyrir næsta leik sem er á heimavelli á móti Val annað kvöld.

Valsmenn lentu í sömu vandræðum með bandaríska leikmann karlaliðsisn en  Urald King fékk ekki keppnisleyfi í fyrstu leikjum tímabilsins vegna þess að Valsmenn þurftu að bíða eftir sakavottorði frás Þýskalandi.

Urald King missti alls af sex deildarleikjum Valsmanna en Valsliðið hefur síðan unnið 11 af 12 leikjum sínum í deild og bikar síðan að hann fékk loksins keppnisleyfi sitt.

Þjóðverjarnir tóku sér góðan tíma í að senda sakavottorðið til Íslands og endurtaka nú leikinn í máli Angelu Rodriguez.

Nú er að sjá hvernig gengur hjá KR-ingum að fá leyfi fyrir nýja Bandaríkjamanninn sinn P.J. Alawoya sem á það sameiginlegt með Angelu Rodriguez og Urald King að hafa spilað í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×