Körfubolti

Grindavík í undanúrslit

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lewis Clinch Jr. átti fínan leik.
Lewis Clinch Jr. átti fínan leik. vísir/stefán
Grindavík er komið í undanúrslit í Maltbikar karla í körfubolta eftir að liðið lagði Þór Akureyri af velli, 74-61, í Höllinni á Akureyri í kvöld.

Jafnræði var á með liðinum nánast allan leikinn en Grindvíkingar alltaf samt sem áður einu skrefi á undan Þórsurum.

Grindvíkingar réttu því úr kútnum eftir slæmt tap fyrir Haukum í Dominos-deildinni á föstudagskvöldið en liðið verður eitt af fjórum sem tekur þátt í bikarhelgi í Laugardalshöllinni.

George Beamon var flottur í liði Þórs í kvöld og gerði hann 23 stig. Lewis Clinch Jr. gerði 20 stig fyrir Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×