Innlent

Grilluðu fyrir hetjurnar í Skeifunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Marteinn Geirsson, deildarstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, fékk gott faðmlag við komuna í Rekstrarland í dag.
Marteinn Geirsson, deildarstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, fékk gott faðmlag við komuna í Rekstrarland í dag. Vísir/Valli
Rekstrarland bauð slökkviliðsmönnum, starfsfólki verslana í Skeifunni og öðrum sem komu að björgunaraðgerðum í brunanum í Skeifunni á sunnudagskvöldið í grillveilsu í hádeginu í dag. Á annað hundrað manns komu að björgunaraðgerðum sem stóðu langt fram á nótt.

Búð Rekstrarlands í Skeifunni var ein þeirra sem verst varð úti í fyrrnefndum bruna. Gaskútar í búðinni sprungu með látum í brunanum en tökumaður Stöðvar 2 náði sprenginunum á myndband. Ný búð hefur verið opnuð í Mörkinni 4 þar sem grillað var í hádeginu í dag.

Framkvæmdastjóri Rekstrarlands segir það kraftaverki næst að hægt hafi verið að opna verslunina að nýju á þetta skömmum tíma.

Eyðileggingin sem blasti við starfsfólki Rekstrarlands eftir stórbruna í Skeifunni ellefu síðastliðinn sunnudag var algjör. Byggingin var rústin ein og og brunnin til kaldra kola. Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri Rekstrarlands, telur að ef það væri ekki fyrir baráttuanda starfsfólksins og ómetanlegs stuðnings, þá hefði þetta líklega ekki tekist.

„Baráttuandinn og gleðin hjá fólki hefur verið mjög mikil,“ segir Samúel. „Með öflugu starfsfólki sem er búið að vinna nánast allan sólarhringinn og allir sem við höfum leitað til hafa tekið mjög vel beiðni okkar um aðstoð.“

Nú hlýtur það að hafa verið hræðilegt að sjá sitt lifibrauð skyndilega fuðra upp. Geturðu líst þessari tilfinningu aðeins fyrir mér?

„Hún var ekki góð. Ég var úti á landi þegar kviknaði í. Allt okkar starfsfólk mætti og horfði á brunann. Það leið engum vel þetta kvöld.“

Samúel segir að fundað hafi verið átta morguninn eftir brunann og tekin ákvörðun um að opna nýja búð. Ekkert hafi þó verið í hendi hvar hún skyldi vera.

„Það eru margir búnir að vinna mjög mikið undanfarið til að þetta gangi eftir.“

Þvottahúsið Fönn heldur rekstri sínum jafnframt áfram, en upptök eldsins eru rakin þangað og er skrifstofa þeirra staðsett á annarri hæð í Skeifunni 11. Bruninn í Skeifunni ellefu er einn sá mesti í sögu Reykjavíkurborgar. Um 110 slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðunnum og sjötíu björgunarsveitarmenn. Tæknideild lögreglu hefur lokið rannsókn á upptökum eldsins og verður skýrslu skilað á næstu dögum.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, mætti í grillveisluna og tók þessar myndir.

Vísir/Valli
Vísir/Valli
Vísir/Valli
Vísir/Valli

Tengdar fréttir

Fönn þakkar slökkviliðsmönnum

Þvottahúsið Fönn er nú þegar byrjað að þjónusta viðskiptavini sína þrátt fyrir áfallið sem fyrirtækið varð fyrir í brunanum í Skeifunni síðastliðinn sunnudag.

Frábær tækifæri til uppbyggingar í Skeifunni

Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir að í Skeifunni gæti risið glæsilegt hverfi þar sem blandað væri saman viðskiptum og íbúðahúsnæði í anda Meat District á Manhattan og Soho í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×