Enski boltinn

Grealish settur út í kuldann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty

Remi Garde hefur ákveðið að taka Jack Grealish út úr aðalliðshópi Aston Villa eftir að hann braut agareglur félagsins. Hinn tvítugi Grealish þarf nú að æfa með varaliði félagsins í óákveðinn tíma.

Grealish fór út á lífið aðeins nokkrum klukkutímum eftir að Villa steinlá fyrir Everton á laugardaginn. Hann fór svo aftur að skemmta sér í Birmingham á sunnudagskvöldið en myndir af honum og vinum hans rötuðu í enska fjölmiðla.

Grealish var sektaður fyrr á árinu eftir að hann varð uppvís að því að hafa andað að sér hláturgasi á hótelherbergi. Í gær birtust myndir af því þegar vinir hans voru að gera slíkt hið í nærveru hans um helgina.

Garde sagði við blaðamenn á blaðamannafundi í morgun að hegðun Grealish væri ólíðandi. „Hann stenst ekki þær kröfur sem ég set á mína leikmenn. Þess vegna er hann að æfa með U-21 liðinu,“ sagði Garde.

Aston Villa er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins fimm stig að loknum þrettán umferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×