Körfubolti

Graves: Keflavík gerði mig að betri manni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Davíð Þór
William Graves er á leið frá Keflavík eins og áður hefur verið greint frá hefur Maccabi Haifa í Ísrael áhuga á kappanum. Nú virðist vera frágengið að Graves haldi til félagsins miðað við nýjustu Facebook-færslu hans.

„Ég vil þakka Íslandi og öllum hjá Keflavík fyrir að veita mér það tækifæri að koma atvinnumannaferli mínum aftur í gang,“ skrifaði Graves en karfan.is fjallaði um málið.

„Ég vil þakka starfsliðinu, stuðningsmönnunum og liðsfélögum mínum fyrir frábæra veru  hér á landi, hvort sem innan vallarins eða utan hans. Ég hef virkilega notið tímans hér og finnst mjög leitt að leiðir þurfi að skilja nú.“

„En takk fyrir að gera mér kleift að bæta mig sem körfuboltamann og sem manneskju. Takk fyrir!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×