Sport

Græddi milljónir á því að berjast í Kína

Manny og fjölskylda brosa í dag enda nóg inn á bankabókinni.
Manny og fjölskylda brosa í dag enda nóg inn á bankabókinni. vísir/getty
Það vakti athygli margra að Manny Paquiao skildi berjast í Kína frekar en í Bandaríkjunum gegn Chris Algieri.

Ástæðan er einföld - peningar. Skattar eru miklu lægri í Kína og heimalandi hans, Filippseyjum, en í Bandaríkjunum.

Með því að keppa í Kína græddi Paquiao að minnsta kosti 300 milljónir aukalega. Milljónir sem Sámur frændi hefði tekið ef hann hefði barist í Las Vegas.

Þó svo bæði Paquiao og Floyd Mayweather Jr. séu farnir að eldast halda menn enn í þá von um að þeir berjist á næsta ári.

Talað er um að láta þá berjast á heimavelli Dallas Cowboys og þá yrði um að ræða heimsmet í fjölda áhorfenda á hnefaleikabardaga.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×