Uppfært klukkan 00:24
Sérsveitarmenn eru enn að störfum á ganginum í blokkinni við Kirkjuvelli 7. Öskur hafa heyrst í húsinu.
Uppfært klukkan 00:17
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir á Facebook-síðu íbúa Vallahverfis að hún hafi verið að ræða við lögregluna.
Segist lögreglan búast við að aðgerðir að vettvangi taki ekki mjög langan tíma, að um sé að ræða einstakling í einni íbúð og það sé engin hætta á meðan fólk heldur sig fyrir utan lokuð svæði.
Lokunarsvæðið. Síðan var innra lokunarsvæði sem var frekar óljóst þegar rætt var við lögreglu og munur á lokunarsvæðunum ekki skilgreindur.
Posted by Fjarðarpósturinn - bæjarblað Hafnfirðinga on Sunday, August 9, 2015
Samkvæmt heimildum Vísis er íbúinn á Kirkjuvöllum, þaðan sem lætin bárust í kvöld, góðkunningi lögreglunnar. Hann var síðast dæmdur í tíu mánaða fangelsi í mars síðastliðnum en á langan afbrotaferil að baki.
Veistu meira um málið? Sendu okkur línu eða myndir á ritstjorn@visir.is
Uppfært klukkan 23:45
Fjöldi sérsveitarmanna er á gangi á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi á Kirkjuvöllum 7 í Hafnarfirði. Ekki liggur ljóst fyrir en óhljóð bárust úr íbúð á hæðinni fyrr í kvöld.
Benedikt Mewes, íbúi í blokkinni, segir við Vísi að hann hafi verið sofandi þegar hann vaknaði við óhljóðin. Sambýlismaður hans hafi heyrt afar hátt öskur úr íbúð á hæðinni fyrir neðan. Svo hafi verið barið af afli með járnstöng í handriðið á svölunum sem eru í sjónlínu frá svölum þeirra Benedikts.
Benedikt telur því að ekki hafi verið um skothljóð að ræða eins og aðrir íbúar í hverfinu töldu sig hafa heyrt í kvöld.
Biggi lögga tjáir sig um aðgerðir lögreglu á Facebook
Til nágranna minna á Völlunum í Hafnarfirði. Þeir sem eru vakandi þegar þetta er skrifað og eru á fésbókini vita væ...
Posted by Biggi lögga on Sunday, August 9, 2015
Benedikt segir lögreglu hafa sagt sér að halda kyrru fyrir inni. Það vill hins vegar svo óheppilega til að hann þarf að vera kominn út á Keflavíkurflugvöll klukkan 01.
Fréttamaður 365 miðla á staðnum staðfestir að öllum leiðum inn í Vallarhverfið hafi verið lokað. Lögregla veitir engar upplýsingar um aðgerðina að svo komnu máli.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast.
Fyrsta frétt
Fjölmennt lið lögreglu er statt í Vallarhverfinu í Hafnarfirði og hefur verið frá því um klukkan 22:30 í kvöld. Götum hefur verið lokað og íbúum sagt að halda sig innandyra. Sérsveitarmenn eru á meðal lögreglumanna og hefur fjölgað mjög í teymi lögreglu undanfarna klukkustund.
Íbúar á svæðinu segja að bæði sé búið að loka fyrir umferð um Kirkjuvelli og Bjarkavelli.
Sjúkrabíll er til taks á svæðinu en ekki fást upplýsingar frá lögreglu enn sem komið er.
Starfsmaður slökkviliðsins staðfesti við Vísi að lögregla væri í aðgerð og þeir væru til taks.
Að neðan má sjá myndband frá lögregluaðgerðum í Hafnarfirði í kvöld.




