Viðskipti erlent

GoPro í vandræðum: Trompað af nýjum dróna DJI

Samúel Karl Ólason skrifar
DJI og GoPro eru nú í harðri samkeppni á drónamarkaði.
DJI og GoPro eru nú í harðri samkeppni á drónamarkaði.
Rétt rúmri viku eftir að fyrirtækið GoPro kynnti nýjustu vöru sína hefur fyrirtækið verið trompað af keppinautum sínum.

Á mánudaginn í síðustu viku kynnti GoPro með mikilli viðhöfn drónann Karma, sem fyrirtækið sagði vera með þeim minni á markaðinum.

Sjá einnig: GoPro snýr sér að drónunum

Nú hefur fyrirtækið DJI, sem er hvað þekktast fyrir drónanna Phantom, kynnt nýjasta dróna sinn, Mavic Pro. Í kjölfar kynningarinnar og jákvæðra viðbragða hafa hlutabréf GoPro, sem hefur ekki átt gott ár, lækkað í verði.



Mavic Pro er minni en Karma og einnig er hægt að brjóta hann saman. Þrátt fyrir að Mavic Pro sé minni, fórnar hann ekki neinu af því sem hefur gert Phantom drónana svo vinsæla.

Hægt er að taka myndir og myndbönd í 4K upplausn og er með 12 megapixla myndavél. Þrátt fyrir að hann sé mun minni en Phantom heldur DJI því fram að hann geti verið lengur á lofti, eða um 27 mínútur. Þá nær hann um 65 kílómetra hraða og greinir umhverfi sitt svo hann klessi ekki á veggi og annað.

Þar að auki er hægt að senda myndbönd úr Mavic í beinni á Facebook, YouTube og öðrum miðlum. Versti vandi GoPro er hins vegar að Mavic er ódýrari en Karma, því kaupa þarf myndavélina með Karma aukalega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×