Körfubolti

Góður útisigur hjá Sigurði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Sigurður Gunnar Þorsteinsson átti fínan leik þegar að lið hans, Solna Vikings, hafði betur gegn Jämtland, 100-88, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sigurður skoraði átta stig í leiknum og tóik níu fráköst og þess að stela boltanum sex sinnum. Hann lék í tæpar sautján mínútur og nýtti þær vel.

Þetta var annar sigur Solna í röð en liðið er nú í sjöunda sæti deildarinnar með tíu stig. Jämtland er í tíunda sætinu með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×