Körfubolti

Goðsögnin stígur til hliðar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bird hefur verið nær samfleytt hjá Indiana frá 1997.
Bird hefur verið nær samfleytt hjá Indiana frá 1997. vísir/getty
Larry Bird er hættur sem forseti NBA-liðsins Indiana Pacers. Adrian Wojnarowski hjá Yahoo greindi fyrstur frá.

Samkvæmt heimildum Wojnarowskis tekur framkvæmdastjóri Indiana, Kevin Pritchard, við starfi Birds. Goðsögnin verður þó í einhvers konar ráðgjafarhlutverki hjá Indiana. Bird hefur einnig verið orðaður við forsetastöðuna hjá Orlando Magic.

Bird, sem er borinn og barnfæddur í Indiana, hefur verið nær samfleytt hjá Indiana Pacers í 20 ár. Hann þjálfaði liðið frá 1997-2000 og tók svo við sem forseti þess 2003 og hefur gengt því starfi síðan, að einu ári undanskildu.

Bird er sá eini í sögu NBA sem hefur verið valinn verðmætasti leikmaður ársins, þjálfari ársins og framkvæmdastjóri ársins.

Bird kom Indiana einu sinni í úrslit NBA (2000) sem þjálfari liðsins. Í forsetatíð hans komst Indiana lengst í úrslit Austurdeildarinnar.

Indiana lenti í 8. sæti Austurdeildarinnar í vetur og var svo sópað úr leik af Cleveland Cavaliers í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×