Góð kvöldveiði í Kleifarvatni

Vísir Veiði 22. ágúst 2011 15:12
Fín veiði úr Kleifarvatni, þessi mynd er úr frétt sem við birtum fyrr í sumar
Fín veiði úr Kleifarvatni, þessi mynd er úr frétt sem við birtum fyrr í sumar
Karl Lúðvíksson skrifar:
Fín veiði hefur verið í Kleifarvatni síðustu daga hjá þeim sem veiða helst á kvöldin og í ljósaskiptunum.  Þá hefur urriðinn og bleikjan gengið nær landi tekið vel agn veiðimanna hvort sem um flugu eða beitu er að ræða.

Veiðin virðist vera mest í suðurbotninum en það gæti líka stafað af því að þangað fara flestir til að veiða.  Jón Einarsson var þar fyrir fáum kvöldum við annan mann og lönduðu þeir um 30 fiskum eftir klukkan níu um kvöldið til miðnættis og misstu annað eins.  Annar var með flugu en hinn með makríl og maðk, skiptist aflinn sæmilega jafnt á milli þeirra.

Mest fengu þeir við Lambhagann en nokkra fiska fengu þeir líka við klappirnar norður af Lambhaganum, þar af eina 7 punda bleikju.  Töluvert líf færist í vatnið þegar skyggja tekur og því ekki úr vegi að hvetja menn til að nýta þá fáu daga sem eftir eru af veiðitímabilinu í vatninu til að stunda kvöldveiðina.  Og annað sem Jón vildi koma á framfæri er að minna menn á að vera með hausljós, því það er orðið ansi dimmt á kvöldin núna og í raun alveg furðulegt að ná fiski á flugu í kolniðamyrkri við vatnið.

Fleiri fréttir - Veiði

Veiði 21. feb. 2012 15:14

4.320 umsóknir um leyfi á hreindýr

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöld...  

Meira
Veiði 20. feb. 2012 14:24

Batnandi útlit í Eyjafjarðará

Stangaveiðimenn hafa eflaust flestir síðustu árin fylgst með niðursveiflu Eyjafjarðarár, a...  

Meira
Veiði 20. feb. 2012 14:22

Úthlutun veiðileyfa í Elliðaánum endurskoðað 2013

Í ár var óvenjumikill fjöldi umsókna um veiðileyfi í Elliðaánum og fengu færri en vildu. Þ...  

Meira
Veiði 17. feb. 2012 12:47

Nóg að gera í bókunum hjá Lax-Á fyrir sumarið

Það er mikið að gera hjá veiðileyfisölum landsins þessa dagana enda eru menn farnir að bók...  

Meira
Veiði 14. feb. 2012 12:09

Rétt rúmar 6 vikur í veiðitímabilið

Það eru eflaust margir veiðimenn farnir að kíkja á græjurnar og sjá hvernig vetrardvöl í g...  

Meira
Veiði 14. feb. 2012 10:25

Úthlutun lokið hjá SVFR

Þá er formlegri úthlutun lokið hjá SVFR. Því miður, eins og alltaf, fengu ekki allir féla...  

Meira
Veiði 07. feb. 2012 10:52

Vesturröst með kastnámskeið

Kastnámskeiðin hjá Vesturröst eru að fara í gang og þeir sem ætla að taka vel á veiðinni í...  

Meira
Veiði 07. feb. 2012 09:31

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar 2011. Hátíðinn...  

Meira
Veiði 07. feb. 2012 09:27

Varmá áfram hjá SVFR

Eftir nokkra óvissu liggur fyrir að Varmá/Þorleifslækur verður áfram í sölu hjá Stangaveið...  

Meira
Veiði 03. feb. 2012 09:17

Íslensku hrosshárin slógu í gegn

Á dögunum fór fram The Fly Fishing Show í New Jersey. Sýning þessi er ein stærsta sýning u...  

Meira
Veiði 01. feb. 2012 09:42

Hanahálsfjaðrir að verða illfáanlegar

Allt frá því í fyrra hefur verð á hanafjöðrum til hnýtinga rokið upp úr öllu valdi. Ástæða...  

Meira
Veiði 01. feb. 2012 09:39

Fleiri útboð á döfinni

Um helgina voru auglýst tvö útboð veiðisvæða á komandi vikum. Um er að ræða Skógá undir Ey...  

Meira
Veiði 31. jan. 2012 14:14

Iðuklettar í Stóru-Laxá horfnir

Iðuklettar, hið mikla kennileiti á svæði þrjú í Stóru Laxá, hrundi í gær þegar áin ruddi s...  

Meira
Veiði 31. jan. 2012 13:33

Risableikjur í norður Kanada

Það er alltaf gaman að sjá veiðimyndir frá öðrum löndum og fræðast aðeins um það sem erlen...  

Meira
Veiði 27. jan. 2012 14:27

Hreindýrakvóti 2012 verður 1009 dýr

Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfis...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Veiði / Góð kvöldveiði í Kleifarvatni