Handbolti

Gleður norsku þjóðina fyrir hver jól

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir hefur náð frábærum árangri með norska landsliðið.
Þórir hefur náð frábærum árangri með norska landsliðið. vísir/epa
Þórir Hergeirsson er enn á ný búinn að koma kvennalandsliði Noregs í handbolta í undanúrslit á stórmóti en norsku stelpurnar unnu Svartfjallaland í átta liða úrslitunum og mæta Rúmeníu í undanúrslitum í kvöld.

Þetta er í sjöunda sinn á átta stórmótum liðsins undir hans stjórn sem norsku stelpurnar spila um verðlaun og það eru góðar líkur á því að fimmta gullið sé á leiðinni. Norska kvennalandsliðið er sannur gleðigjafi fyrir norsku þjóðin fyrir jól og það hefur nánast hægt verið að treysta á það undanfarin ár að norsku stelpurnar spili og fagni sigrum í jólamánuðinum.

Norska liðið þykir nú afar sigurstranglegt á mótinu enda margir á því að leikurinn við Svartfjallaland hafi verið hálfgerður úrslitaleikur á mótinu. Ofan á það bætist að dönsku stelpurnar töpuðu fyrir Rúmeníu í framlengingu í átta liða úrslitunum og rússneska liðið datt út á móti Póllandi.

Rússarnir unnu einmitt norska liðið í fyrsta leik en síðan þá hafa stelpurnar hans Þóris unnið sex leiki í röð á mótinu.

Þórir var enginn nýgræðingur þegar hann tók við norska landsliðinu af Marit Breivik árið 2009. Þórir hafði aðstoðað Marit Breivik í átta ár og átt mikinn þátt í fjórum gullverðlaunum og þremur silfurverðlaunum norska liðsins á þeim tíma.

Þórir á því mikið í þeim ótrúlega árangri norska liðsins að vera að spila um verðlaun í ellefta sinn á síðustu tólf stórmótum.

fréttablaðið
Tap í fyrsta leik boðar gott

Tapið í fyrsta leik á móti Rússum var í þriðja sinn sem norska liðið hefur tapað fyrsta leik á stórmóti síðan Þórir tók við og það ætti bara að boða gott því í bæði hin skiptin, á HM 2011 og ÓL 2012, fagnaði Þórir og stelpurnar með gullið um hálsinn í mótslok.

Norska liðið vann líka sinn 50. stórmótaleik undir stjórn Þóris á þessum HM en sá sigur kom einmitt á móti Rúmeníu í riðlakeppninni, mótherjunum í undanúrslitunum í kvöld.

Rúmenska liðið vann bara Púertó Ríkó og Kasakstan í riðlakeppninni en er búið að slá út Danmörku í útsláttarkeppninni. Þetta er þegar orðinn besti árangur Rúmenanna á HM undanfarin 42 ár en rúmensku stelpurnar hafa fjórum sinnum orðið í fjórða sæti á þessum tíma.

Sex úrslitaleikir á sex árum?

Nú er að sjá hvort þær rúmensku haldi áfram að koma á óvart á heimsmeistaramótinu en flestir veðja þó á það að Þórir komi liðinu í sjötta úrslitaleikinn á sex árum.

Vinni þær norsku leikinn í kvöld bíður liðsins úrslitaleikur á móti annaðhvort Póllandi eða Hollandi á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×