Glćpur og refsing

Fréttablađiđ Fastir pennar 31. ágúst 2010 07:30
Ólafur Stephensen
Ólafur Stephensen Mynd/Stefán Karlsson
Ólafur Stephensen skrifar:

Fréttablaðið sagði í síðustu viku frá athyglisverðum niðurstöðum könnunar, sem gerð var á viðhorfi Norðurlandabúa til refsinga í ýmsum brotamálum. Í íslenzka hluta könnunarinnar, sem Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur stýrði, kom fram að almenningur á Íslandi telur annars vegar að refsidómar séu vægari en þeir raunverulega eru og hins vegar að þær refsingar, sem þátttakendur í könnuninni útdeildu sjálfir eftir að hafa kynnt sér málavöxtu í mismunandi brotamálum, eru vægari en þær sem reyndir dómarar ákveða í sömu málum.

Niðurstöðurnar koma á óvart, enda rifjar Helgi upp margvíslegar rannsóknir, sem hann hefur staðið fyrir og hafa ævinlega sýnt að almenningur á Íslandi telji dóma of væga. Það er sömuleiðis í samræmi við hina almennu umræðu í samfélaginu.

Helgi telur mögulegt að þynging refsinga, sem óumdeilanlega hefur átt sér stað á undanförnum árum, hafi farið framhjá fólki og jafnvel hafi verið gengið of langt í þeim efnum.

Þetta er þó sennilega mismunandi eftir brotaflokkum. Enn er viðhorf margra að dómar í kynferðisbrotamálum, ekki sízt þar sem börn eru fórnarlömbin, séu of vægir. Helgi Gunnlaugsson telur að eftir að dómar í fíkniefnamálum voru þyngdir mjög fyrir nokkrum árum hafi dómar í annars konar brotamálum verið bornir saman við þá. Í málum þar sem börn eru beitt kynferðisofbeldi er sá samanburður enn mjög á einn veg; þar er úthlutað vægari dómum og refsiramminn sem Alþingi hefur ákveðið síður nýttur.

Hitt er áreiðanlega rétt, að niðurstöður könnunarinnar kunna að benda til að í ýmsum málum séu dómstólar jafnvel farnir að kveða upp svo þunga dóma, að sé komið á skjön við réttarvitund almennings. Full ástæða er til að skoða og ræða hvort svo sé.

Helgi hvetur til þess að nefnd dómsmálaráðherra, sem á að skoða hvernig bregðast eigi við ástandinu í fangelsismálum, hafi niðurstöður könnunarinnar til hliðsjónar. Nú er svo komið, að menn sem dæmdir hafa verið til fangelsisvistar fyrir afbrot geta þurft að bíða mánuðum eða misserum saman eftir því að hefja afplánun. Á undanförnum árum eru dæmi þess að menn hafa látizt áður en þeir voru boðaðir til afplánunar, eða þá að refsingin fyrndist. Slíkt ástand þýðir annars vegar að sumir taka aldrei út refsingu. Hins vegar jaðrar það við mannréttindabrot, því að í ýmsum tilvikum eru menn búnir að ná tökum á lífi sínu á ný á meðan þeir bíða afplánunar, jafnvel komnir í vinnu og búnir að stofna fjölskyldu og heimili og eiga þá yfir höfði sér að fangelsisvist kippi aftur undan þeim fótunum.

Lausnin á þessum vanda felst í tvennu; að bæta við fangelsum svo allir geti afplánað sem fyrst, og að breyta því hvernig menn taka út sína refsingu. Mörg nágrannalönd okkar hafa aukið heimildir dómstóla til að dæma menn til samfélagsþjónustu, með góðum árangri.

Full ástæða er til að skoða leiðir af því tagi, með það að markmiði að menn taki út sína refsingu en hún stuðli jafnframt að því að þeir verði nýtir þjóðfélagsþegnar. Líkast til er vaxandi stuðningur meðal almennings við slíkar lausnir.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Glćpur og refsing