Golf

GK og GR Íslandmeistarar í golfi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigursveit GR í kvennaflokki fyrir ofan og Sigursveit GK í karlaflokki fyrir neðan.
Sigursveit GR í kvennaflokki fyrir ofan og Sigursveit GK í karlaflokki fyrir neðan. Mynd/Golfsamband Íslands
Keilir er Íslandsmeistari karla í golfi eftir sigur á Golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs í úrslitaleik í dag í karlaflokki, en leikið var á Korúplfsstaðarvelli. Í kvennaflokki vann GR lið Keilis sem mistókst að tryggja sér tvennuna, það er að segja vinna í bæði karla- og kvennaflokki.

Björgvin Sigurbergsson er liðstjóri GK, en Benedikt Sveinsson og Henning Darri Þórðarson töpuðu ekki leik í fjórmenninginum og léku gott golf. Lið GK var ógnarsterkt og vann sigur á GKG í úrslitaleiknum.

GK hreppti, eins og áður segir, gullið og GKG lenti í öðru sæti, en GR lenti í þriðja sæti eftir mikla baráttu við Golfklúbb Mofellsbæjar sem vann mótið í fyrra.

GJÓ og GKB voru í fimmta og sjötta sæti, en Golfklúbbur Borganess og Gofklúbbur Setbergs féllu í aðra deild og leika því þar að ári liðnu, en Golfklúbburinn leynir og Gofklúbbur Fjallabygðar/Hamar taka sæti þeirra.

Lokastaðan karla:

1. Golfklúbburinn Keilir

2. Golfklúbbur Kópav. og Garðab.

3. Golfklúbbur Reykjavíkur

4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar

5. Golfklúbburinn Jökull

6. Golfklúbbur Kiðjabergs

7. Golfklúbbur Borgarness*

8. Golfklúbbur Setbergs*

* GB og GSE falla í 2. deild.

Í kvennaflokki vann Golfklúbbur Reykjavíkur sinn sautjánda Ísladsmeistaratitil í kvennaflokki eftir sigur á Keili í úrslitaleiknum, en Keilir átti möguleika á að vinna tvöfalt; bæði í karla- og kvennaflokki.

GR hefur að skipta ógnasterkum hóp, en í þeim hóp er meðal annars Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem hefur verið að leika vel í Evrópu að undanförnu, en þar er einnig Sunna Víðisdóttir.

Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbburinn Oddur féllu úr fyrstu deild og leika því í annari deild á næstu leiktíð, en Golfklúbbur Selfoss og Golfklúbburinn Leyni taka sæti þeirra í efstu deild.

Lokastaðan kvenna:

1. Golfklúbbur Reykjavíkur

2. Golfklúbburinn Keilir

3. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar.

4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar.

5. Golfklúbbur Suðurnesja.

6. Nesklúbburinn.

7. Golfklúbbur Akureyrar.*

8. Golfklúbburinn Oddur.*

* GA og GO falla í 2. deild.

Sigursveit GR í kvennaflokki.Mynd/Golfsamband Íslands
Sigursveit Keilis í karlaflokki.Mynd/Golfsamband Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×