Gíslatakan í Borgartúni Markús Möller skrifar 20. apríl 2011 09:00 Undanfarið hafa Samtök atvinnulífsins gert háværar kröfur á þjóðina. Eignarhald á kvóta skuli fest til langs tíma, annars hafið þið verra af. Það þekkist víðar að taka fémuni og jafnvel fólk í gíslingu þar til kröfur á blásaklausar manneskjur nást fram. Þeir sem slíkt stunda eru kallaðir fjárkúgarar og jafnvel hryðjuverkamenn. Í hinum siðaða heimi er þeim stungið í tugthús, ef sekt telst sönnuð. Hvað segir vinnulöggjöfin?Lög um vinnudeilur kveða á um svipaða hegðun og SA iðkar. Þar segir í 17. grein (með úrfellingum): Óheimilt er og að hefja vinnustöðvun ... ef tilgangur vinnustöðvunarinnar er að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim lögum samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim lögum samkvæmt er skylt að framkvæma... Og í 19. grein: Vinnustöðvanir í skilningi laga þessara eru verkbönn atvinnurekenda og verkföll þegar launamenn leggja niður venjuleg störf sín ... Sama gildir um aðrar sambærilegar aðgerðir... Samtök atvinnulífsins hafa að sönnu ekki boðað formlegt verkbann, en hitt er dagljóst að hegðun þeirra gengur þvert á anda laganna. Fjárkúgun er ljótur leikur, eins þegar hún fer framhjá lögum fremur en þvert á þau. Á skal að ósi stemma. Óábyrg meðferð á flautuTugthús landsins eru full og kjánalegt að brúka harkalegri viðurlög en þörf er á. Hvað á þá að gera við þá sem misbeita valdi sem þeir fá að lögum – í þessu tilviki til að fara með umboð fjölda aðila þrátt fyrir almenna kröfu um samkeppni? Ég man eftir bikarleik í Laugardal fyrir nær fimmtíu árum, milli KR og Keflavíkur. Þar stóð álengdar náungi sem var óánægður með gang leiksins, sérstaklega dómarann, og lá ekki á því. Síðast gekk svo fram af honum að hann hrópaði yfir sig: „Getur ekki einhver tekið flautuna af manninum?“ Er það ekki hugmynd? Væri ekki ráð að banna mönnum og samtökum með gíslatökutilburði að koma nálægt vinnudeilum og öðru mikilvægu starfi á vinnumarkaði í tiltekinn tíma? Hvað er einn valdsmaður þegar búið er að taka af honum flautuna? Hver kaus þá?Annað atvik dúkkar líka upp í minningunni. Ég var einhverju sinni á landsfundi ónafngreinds flokks með fleirum að þrasa við kvótaþingmann. Þegar honum leiddist þófið sagði hann: „En strákar, það vorum við sem vorum kosnir.“ Það sljákkaði í okkur, því þetta var rétt hjá Vilhjálmi Egilssyni þá og er enn. Það er til óþurftar þegar menn kunna ekki mörk þess umboðs sem þeir hafa og virða ekki lýðræðislegt vald sem öðrum er fengið, þótt slíkt vald verði auðvitað að virða reglur lýðræðisins. En hver hefur kosið þá sem nú gera kröfu til að stýra landinu með hótunum og gíslatöku? Það gerðu sérhagsmunirnir einir, og það er ótækt að láta þá sitja yfir almannahagsmunum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Hataðu mig af því að ég er í Viðreisn, ekki af því að ég er hommi Oddgeir Georgsson Skoðun Þegar skoðanir drepa samtalið Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Leysum heimatilbúin vanda á húsnæðismarkaði Jóhanna Klara Stefánsdóttir Skoðun Margföldun þjóðarverðmæta: Meira virði úr sömu orku Árni Sigurðsson Skoðun Við þurfum að tala sama Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun Veðmál í fótbolta – aðgerðir áður en skaðinn verður Birgir Jóhannsson Skoðun Fyrirhugað böl við Bústaðaveg og Blesugróf Sveinn Þórhallsson Skoðun Fjölbreytt námsmat Steinn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Þreytt og drullug börn Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Betri kvikmyndaskóli Þór Pálsson skrifar Skoðun Fyrirhugað böl við Bústaðaveg og Blesugróf Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Fjölbreytt námsmat Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Að þvælast fyrir atvinnurekstri - á þeim forsendum sem henta Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Margföldun þjóðarverðmæta: Meira virði úr sömu orku Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar skoðanir drepa samtalið Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Leysum heimatilbúin vanda á húsnæðismarkaði Jóhanna Klara Stefánsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum að tala sama Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Veðmál í fótbolta – aðgerðir áður en skaðinn verður Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Hataðu mig af því að ég er í Viðreisn, ekki af því að ég er hommi Oddgeir Georgsson skrifar Skoðun Símafrí á skólatíma Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Ömurlegur fyrri hálfleikur – en er enn von? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Vitund, virðing og von: Jafningjastuðningur í brennidepli Nína Eck skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra – Um þögnina sem styður ofbeldi Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson skrifar Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson skrifar Skoðun Nýjar reglur um réttindi fólks í ráðningarsambandi Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson skrifar Skoðun Eplin í andlitshæð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Bataskólinn – fyrir þig? Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir Sigurður Hannesson,Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Grunnstoðir sveitarfélagsins efldar til muna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Laugarnestangi - til allrar framtíðar Líf Magneudóttir skrifar Sjá meira
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun
Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson skrifar
Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar
Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun