Sport

Getur Conor komist á spjöld sögunnar með sigri á sögulegu bardagakvöldi?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Eddie Alvarez og Conor McGregor í vigtuninni í gær.
Eddie Alvarez og Conor McGregor í vigtuninni í gær. Vísir/Getty
Conor McGregor mætir Eddie Alvarez í kvöld á UFC 205. Með sigri getur Conor McGregor gert nokkuð sem engum öðrum hefur áður tekist – að vera meistari í tveimur flokkum á sama tíma.

Bardaginn í kvöld er aðalbardaginn á UFC 205 en bardagakvöldið er eitt það besta sem UFC hefur sett saman. Á bardagakvöldinu eru þrír titilbardagar en þrír aðrir fyrrum meistarar berjast.

Bardagakvöldið er sögulegt fyrir margar sakir en þetta er í fyrsta sinn sem UFC heldur bardagakvöld í New York eftir að MMA var aftur lögleitt í ríkinu. UFC hefur selt miða fyrir 17 milljónir dollara en í dag eru nákvæmlega 23 ár síðan UFC hélt sitt fyrsta bardagakvöld.

Fjaðurvigtarmeistarinn Conor McGregor mætir léttvigtarmeistaranum Eddie Alvarez í aðalbardaga kvöldsins. Eddie Alvarez varð léttvigtarmeistari UFC eftir sigur á Rafael dos Anjos í sumar.

Alvarez er mjög harður bardagamaður og barist víðs vegar um heiminn en hann hefur verið kallaður neðanjarðar kóngurinn. Alvarez mun væntanlega reyna að pressa McGregor að búrinu, gefa honum minna pláss til að athafna sig og fara í skrokkinn til að þreyta McGregor. Alvarez vill sennilega gera þetta að ljótum bardaga – ekki ósvipað og hann gerði við Anthony Pettis.

Alvarez hefur margoft talað um að McGregor þreytist og hægir á sér eftir 2. lotu og er planið hans sennilega að draga bardagann á langinn. Alvarez hefur tekið minna af áhættum eftir að hann kom í UFC en þegar hann meiðir andstæðinginn kemur gamli hundurinn upp í Alvarez. Þá er voðinn vís fyrir andstæðinga hans og gengur hann berserksgang til að klára andstæðinginn um leið og hann sér að andstæðingurinn er kominn í vanda.

Þó Conor McGregor sé talinn sigurstranglegri af veðbönkum verður þetta langt í frá auðveld viðureign fyrir Írann. Það er ástæða fyrir því að Eddie Alvarez er léttvigtarmeistarinn og verður lítið svigrúm fyrir mistök í kvöld.

Engum hefur áður tekist að halda tveimur beltum á sama tíma í UFC og myndi sigur hjá Conor McGregor því verða sögulegur. UFC 205 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í nótt og hefst bein útsending kl 3.

MMA

Tengdar fréttir

Írska peningavélin Conor McGregor

Aðfararnótt sunnudagsins munu Conor McGregor og Eddie Alvarez eigast við í aðalbardaga kvöldsins í sögulegri viðureign en þetta bardagakvöld er það fyrsta sem UFC samtökin halda í New York fylki. Einnig gæti írinn kjaftfori staðið uppi með tvö meistarabelti eftir bardagann. Hér verður leið hans að þessum tímamótum rakin.

UFC 205: Getur Woodley stöðvað karate strákinn?

UFC 205 fer fram í kvöld í Madison Square Garden í New York. Um er að ræða risabardagakvöld þar sem þrír titilbardagar fara fram og er m.a. barist um veltivigtartitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×