LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 19:44

Stelpurnar töpuðu stórt á móti Noregi

SPORT

Gerrard: Viljum ekki setja of mikla pressu á okkur

Vísir Fótbolti 02. júní 2012 12:30
Gerrard: Viljum ekki setja of mikla pressu á okkur
Steven Gerrard, fyrirliði enska landsliðsins, leyfir sér að vera bjartsýnn fyrir EM þó svo marga sterka lykilmenn vanti í enska landsliðið.

"Það eru alltaf væntingar en auðvitað verða þær ekki eins miklar þar sem okkur vantar sterka leikmenn. Að sjálfsögðu efast svo margir um að við getum náð árangri án allra þessara manna. Við getum samt ekki ráðið því hvað fólki finnst. Við verðum að mæta og gera okkar besta," sagði Gerrard.

"Við erum með sjálfstraustið í lagi en erum þöglir og látum ekki mikið í okkur heyra með það. Við vitum allir að enska landsliðið hefur ekki staðið undir væntingum á síðustu mótum.

"Við viljum ekki setja of mikla pressu á okkur sjálfa. Við ætlum að reyna að njóta mótsins og vonandi getum við spilað fínan bolta."

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fótbolti 25. maí 2013 16:55

Margrét Lára skoraði en Kristianstad tapaði 3-4

Íslendingaliðið Kristianstad tapaði 3-4 á móti Kopparbergs/Göteborg á útivelli í dag í sænsku kvennadeildinni í fótbolta. Kopparbergs/Göteborg skoraði sigurmarkið aðeins tveimur mínútum eftir að Margr... Meira
Fótbolti 25. maí 2013 16:30

Fer frá Napoli til Internazionale

Walter Mazzarri verður nýr þjálfari ítalska liðsins Internazionale frá Mílanó en hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning. Mazzarri hefur gert frábæra hluti með Napoli á fjórum tímabilum sínum þa... Meira
Fótbolti 25. maí 2013 15:54

Fyrsta deildartap KA undir stjórn Bjarna

KF skellti KA 4-1 í Tröllaskagaslag á Ólafsfjarðarvelli í dag en liðin mættust þá í 3. umferð 1. deildar karla í fótbolta. KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, lenti undir en svaraði með fjórum mörkum. Meira
Fótbolti 25. maí 2013 15:22

Skellur hjá Íslendingaliðinu Hönefoss

Kristján Örn Sigurðsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og félagar í Hönefoss töpuðu 0-4 á móti Ole Gunnar Solskjær og lærisveinum hans í Molde í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Meira
Fótbolti 25. maí 2013 14:59

Hólmfríður skoraði og Guðbjörg hélt hreinu

Íslensku landsliðskonurnar og vinkonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir voru í sviðsljósinu þegar Avaldsnes vann 2-0 heimasigur á Sandviken í norsku kvennadeildinni í dag. Íslendin... Meira
Fótbolti 25. maí 2013 14:30

Demba Ba kemst ekki lengur í landslið Senegal

Demba Ba, framherji Chelsea, er ekki lengur nógu góður til þess að komast í landslið Senegala. Alain Giresse, þjálfari landsliðsins, valdi Ba ekki í liðið fyrir leiki í undankeppni HM í næsta mánuði. Meira
Fótbolti 25. maí 2013 14:00

Beckham ekki með PSG á morgun - ferillinn búinn

David Beckham var ekki valinn í 19 manna leikmannahóp franska liðsins Paris St Germain sem mætir Lorient á morgun í lokaumferð frönsku deildarinnar. Það þýðir að Beckham hefur spilað sinn síðasta leik... Meira
Fótbolti 25. maí 2013 13:15

Fyrstur til að spila eftir að hafa komið út úr skápnum

Bandaríski knattspyrnumaðurinn Robbie Rogers vakti heimsathygli í febrúar þegar hann kom út úr skápnum og tilkynnti að hann væri samkynhneigður. Nú ætlar hann fyrstur fótboltamanna að spila í bandarís... Meira
Fótbolti 25. maí 2013 12:45

Spilar hundraðasta landsleikinn á afmælisdaginn

Vignir Þröstur Hlöðversson, blakmaður úr Stjörnunni, valdi heldur betur daginn til þess að spila sinn hundraðasta landsleik. Vignir spilaðar hundraðasta landsleikinn á 46 ára afmælisdaginn sinn. Meira
Fótbolti 25. maí 2013 11:45

Neymar fær að velja á milli Barcelona og Real Madrid

Það vildu örugglega margir knattspyrnumenn vera í sporum Brasilíumannsins Neymar sem fær nú tækifæri til að velja hvort hann spili með tveimur af stærstu knattspyrnufélögum heima, Barcelona eða Real M... Meira
Fótbolti 24. maí 2013 23:30

Óvenjuleg upphitun | Myndband

Þýska fótboltaritið 11Freunde sendi frá sér afar skemmtilegt upphitunarmyndband fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Meira
Fótbolti 24. maí 2013 22:00

Ísland gæti lent með Gíbraltar í riðli í næstu undankeppni

Gíbraltar var í dag tekið inn í Knattspyrnusamband Evrópu og verður 54. meðlimur samtakanna. Ísland gæti því hugsanlega lent í riðli með Gíbraltar í undankeppni EM 2016. Meira
Fótbolti 24. maí 2013 17:11

Monaco keypti tvo sterka frá Porto

Fyrrum félag Eiðs Smára Guðjohnsen, AS Monaco, reif upp veskið með látum í dag er félagið keypti tvo sterka leikmenn frá Porto. Meira
Fótbolti 24. maí 2013 15:15

Platini vill stofna íþróttalögreglu

Michel Platini, forseti UEFA, telur að það sé þörf á því að stofna sérstaka íþróttalögreglu á álfunni sem fengi það verkefni að berst við veðmálabrask, spillingu, hagræðingu úrslita, ólögleg lyf og óe... Meira
Fótbolti 24. maí 2013 11:06

Evrópudeildin fær Meistaradeildarsæti

Frá og með næsta tímabili mun sigurvegari Evrópudeildar UEFA fá þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Meira
Fótbolti 24. maí 2013 10:45

Flestir styðja Þór/KA og FH

MMR kannaði stuðning við lið í Pepsi-deildum karla og kvenna og er niðurstaðan sú að flestir styðja ríkjandi Íslandsmeistarana í hvorri deild. Meira
Fótbolti 24. maí 2013 08:15

City lenti 3-0 undir en vann 4-3

Manchester City og Chelsea áttust við í æfingaleik í St. Louis í Bandaríkjunum í nótt. Meira
Fótbolti 23. maí 2013 21:50

Arnar og félagar áfram í efstu deild

Arnar Þór Viðarsson og félagar í belgíska liðinu Cercle Brugge tryggðu í kvöld sæti sitt í belgísku úrvalsdeildinni. Meira
Fótbolti 23. maí 2013 19:45

Stuðningsmenn Man. City safna fyrir auglýsingu í Gazzetta dello Sport

Það vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar Roberto Mancini, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, keypti heilsíðuauglýsingu í Manchester Evening News þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum félag... Meira
Fótbolti 23. maí 2013 18:58

Gunnar skorar og skorar

Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Norrköping í dag er hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Halmstad á útivelli. Meira
Fótbolti 23. maí 2013 16:45

Ég verð ekkert fúll þótt hann fari frá okkur

Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, virðist vera búinn að sætta sig við að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao sé á förum frá spænska félaginu. Argentínski þjálfarinn ætlar í það minnsta ekki a... Meira
Fótbolti 23. maí 2013 11:30

Mourinho í tveggja leikja bann

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarúrslitaleiknum á Spáni í síðustu viku. Meira
Fótbolti 23. maí 2013 09:15

Rússneski milljarðamæringurinn ekki hættur

Franska blaðið L'Equipe staðhæfir í dag að AS Monaco ætli sér að bjóða 5,5 milljarða króna, 30 milljónir punda, í belgíska varnarmanninn Vincent Kompany, fyrirliða Manchester City. Meira
Fótbolti 22. maí 2013 11:30

Bjarni fær nýjan þjálfara

Bjarni Þór Viðarsson sér ef til vill fram á betri tíð hjá danska liðinu Silkeborg en liðið er komið með nýjan þjálfara. Meira
Fótbolti 22. maí 2013 10:45

Badstuber frá í tíu mánuði í viðbót

Holger Badstuber, varnarmaður Bayern München, hefur ekkert spilað síðan í desember og verður nú frá í minnst tíu mánuði til viðbótar. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Gerrard: Viljum ekki setja of mikla pressu á okkur
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000