Gerræðisleg vinnubrögð borgarstjóra 29. júlí 2008 18:30
Ákvörðun Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra, að víkja varaformanni skipulagsráðs úr ráðinu ber vott um hótanir og gerræðisleg vinnubrögð að mati oddvita minnihlutans. Oddviti Vinstri-grænna segir borgarstjórann einangraðan. Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, ákvað fyrirvaralaust í gærmorgun að víkja Ólöfu Valdimarsdóttur, varaformanni skipulagsráðs, úr ráðinu. Ákvörðun borgarstjóra kom í kjölfar ummæla Ólafar á Stöð tvö um helgina - þar sem hún sagðist ekki geta tekið afstöðu með eða á móti vinningstillögu um byggingu Listaháskóla við Laugavegi fyrr en skipulagsráð hefði fjallað um málið. Borgarstjóri er hins vegar á móti tillögunni. Ólöf Guðný segir ákvörðun Ólafs koma sér algerlega í opna skjöldu. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi framsóknarflokks, segir að ákvörðun borgarstjóra komi á óvart og að hún sé til marks um gerræðisleg vinnubrögð. Undir þetta tekur Svandís Svavarsdóttir, oddviti vinstri grænna. Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna og formaður skipulagsráð, sagði í samtali við fréttastofu að það væri alfarið ákvörðun Ólafs F. Magnússonar hvaða fulltrúa hann skipaði í nefndir og ráð. Ekki náðist í borgarstjóra í dag.
Tengdar fréttir Ólöf Guðný rekin úr skipulagsráði Ólöf Guðný Valdimarsdóttir mun að öllum líkindum víkja úr skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún sagði við Vísi í morgun að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi haft samband við hana í gær og hann hafi tilkynnt henni að hann myndi tilnefna nýjan fulltrúa hennar á næsta fundi borgarráðs. Borgarráð muni svo kjósa um málið. 29. júlí 2008 09:24 Gisli Marteinn las um brotthvarf Ólafar Guðnýjar í fjölmiðlum Gísli Marteinn Baldursson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, las það fyrst í fjölmiðlum í morgun að til stæði að skipa nýjan fulltrúa í skipulagsráð í stað Ólafar Guðnýjar. 29. júlí 2008 10:20 Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira
Ólöf Guðný rekin úr skipulagsráði Ólöf Guðný Valdimarsdóttir mun að öllum líkindum víkja úr skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún sagði við Vísi í morgun að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi haft samband við hana í gær og hann hafi tilkynnt henni að hann myndi tilnefna nýjan fulltrúa hennar á næsta fundi borgarráðs. Borgarráð muni svo kjósa um málið. 29. júlí 2008 09:24
Gisli Marteinn las um brotthvarf Ólafar Guðnýjar í fjölmiðlum Gísli Marteinn Baldursson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, las það fyrst í fjölmiðlum í morgun að til stæði að skipa nýjan fulltrúa í skipulagsráð í stað Ólafar Guðnýjar. 29. júlí 2008 10:20