Fótbolti

Geir um Blatter: Nauðsynlegt og ánægjulegt

Eirikur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Þorsteinsson á blaðamannafundi KSÍ með Sepp Blatter árið 2012.
Geir Þorsteinsson á blaðamannafundi KSÍ með Sepp Blatter árið 2012. Vísir/Pjetur
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að það hafi komið sér á óvart að Sepp Blatter hafi í dag tilkynnt að hann muni stíga til hliðar sem forseti FIFA.

Blatter var kjörinn forseti FIFA í fimmta sinn á ársþingi sambandsins í síðustu viku en þar var Geir viðstaddur. Hann, eins og aðrar Evrópuþjóðir, lýstu yfir stuðningi við mótframbjóðanda Blatter.

„Maður var að vonast til þess að þetta myndi gerast á föstudaginn. Tímasetningin kemur manni því vissulega á óvart,“ sagði Geir í samtali við Vísi í dag.

„Nú bíður maður eftir því hvað gerist næst í málinu. Evrópuþjóðirnar ákváðu að ræða þetta mál næst á laugardaginn þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram í Evrópu,“ sagði Geir.

„En þetta var algjörlega nauðsynlegt enda hafði Evrópa kallað eftir breytingum. Og það er ánægjulegt að þetta hafi gerst í dag.“

Rannsókn bandarískra yfirvalda á spillingarmálum FIFA hafa varpað skugga yfir störf sambandsins og stjórnartíð Blatter. En Geir getur ekki varpað ljósi á hvað hafi breyst á þessum örfáu dögum síðan að forsetakjörið fór fram og Blatter var kjörinn forseti.

„Við sem störfum í knattspyrnunni höfum engan áhuga á að okkar störf snúist um þessi málefni. Við viljum einbeita okkur að knattspyrnunni sjálfri. Þess vegna var breytinga þörf.“

„Nú hafa nýir frambjóðendur tíma til að stíga fram og ég held að það sé alveg ljóst að næsta forsetakjör muni snúast um knattspyrnuna sjálfra. Þetta getur ekki haldið áfram svona.“

Blatter hefur notið stuðnings ríkja í Afríku, Asíu og mið-Ameríku en Geir hefur áður sagt að það sé nauðsynlegt að fulltrúar Evrópu vinni betur með löndum í öðrum heimsálfum í málefnum FIFA.

„Það þarf að skapa skilning á milli landa í mismunandi heimsálfum. Það er ekki síst nauðsynlegt fyrir Evrópu. Maður fann að það andaði köldu á milli Evrópu og annarra heimsálfa á síðasta þingi. Það er ekki aðalmálið að næsti forseti FIFA verði Evrópumaður heldur góður leiðtogi.“

Í dag er talið líklegast að Michel Platini, foresti UEFA, myndi vinna kjörið ef hann gæfi kost á sér.

„Ég myndi styðja hann heilshugar. Hann yrði rétti maðurinn til að sinna þessu starfi enda hefur hann gert frábæra hluti fyrir knattspyrnuna og myndi gera áfram á þessum vettvangi.“


Tengdar fréttir

FIFA skellir skuldinni á látinn mann

FIFA hefur neitað því að framkvæmdastjóri sambandsins, Jerome Valcke, sé háttsetti maðurinn sem er sagður hafa mútað Jack Warner. Warner er einn þeirra sem FBI handtók á dögunum.

Blatter hættir sem forseti FIFA

Sepp Blatter sagði af sér sem forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, skyndilega í dag. Hann gegnir starfinu þar til nýr forseti verður kjörinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×