Tekið á bronsmanninum Geir er undir öruggri handleiðslu Bjarna Friðrikssonar hjá Júdófélagi Reykjavíkur. Geir reynir hér að taka bronsmanninn niður.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Henry Birgir Gunnarsson skrifar:
Stórsöngvarinn Geir Ólafsson er marghamur maður. Hann hefur nú skipt jakkafötunum út fyrir júdóbúning og mun glíma á Íslandsmótinu í júdó um næstu helgi. Hann æfir undir handleiðslu bronsmannsins frá ÓL í Los Angeles, Bjarna Friðrikssonar, sem segir Geir vera öflugan júdókappa sem kveinki sér ekki.
„Ég hef verið í júdó frá því ég var ungur drengur. Fyrsti maðurinn sem ég glímdi við var Thor Vilhjálmsson," sagði söngvarinn geðþekki og nú júdókappinn Geir Ólafsson. Geir mun taka þátt í Íslandsmótinu í júdó í fyrsta skipti um næstu helgi.
Það eru nokkur afföll meðal bestu júdómanna landsins en mest munar þó um að besti júdómaður landsins, Þormóður Árni Jónsson, mun ekki geta keppt vegna meiðsla. Ný andlit fá því tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og Geir er á meðal þeirra manna en hann mun taka þátt í mínus 73 kílógramma flokki.
„Ég hef tekið júdóið mjög föstum tökum síðustu misseri og æft grimmt síðustu sjö mánuði. Í kjölfarið hef ég ákveðið að mæta á Íslandsmótið en það verður fyrsta júdómót sem ég tek þátt í," sagði Geir glaðbeittur. „Ég verð samt að viðurkenna að þó svo ég æfi mikið þá hef ég ekki tekið mataræðið nógu föstum tökum. Ég hef aldrei haft áhyggjur af því hvað ég sé að borða."
Söngvarinn síkáti mætir fullur sjálfstrausts til leiks og ætlar að selja sig dýrt.
„Maður stefnir alltaf á að vinna en fyrst og fremst ætla ég að standa í lappirnir og gera mitt besta. Ég ætla að nýta þá tækni og þekkingu sem ég hef öðlast til þess að gera mitt besta. Ég veit að andstæðingarnir eru gríðarlega erfiðir. Ég mæti þeim með virðingu og vinsemd en mun berjast við þá að því ég best get."
Geir segist vera mjög spenntur fyrir mótinu og hlakki til að taka þátt í mótinu.
„Júdó er göfugmennaíþrótt sem gaman er að stunda. Þetta getur því ekki orðið annað en gaman," sagði Geir en getur hann eitthvað? „Það kemur í ljós á mótinu."
Það er óhætt að segja að Geir sé að fá góða þjálfun en þjálfarinn hans er enginn annar en bronsmaðurinn frá Ólympíuleikunum í Los Angeles, Bjarni Friðriksson.
„Geir er flottur glímumaður og mjög öflugur. Hann er líklega ekki að fara að keppa um Íslandsmeistaratitilinn enda búinn að æfa stutt en hann er mjög öflugur," sagði Bjarni um skjólstæðinginn Geir sem hann segir vera til fyrirmyndar.
„Geir missir aldrei af æfingu og kveinkar sér aldrei. Það er mikill kostur. Hann lenti einu sinni í því að meiða sig en það stoppaði hann ekki. Ég varð svo að reyna að stoppa hann því hann neitaði að hætta. Honum finnst þetta svo gaman," sagði Bjarni ánægður með sinn mann.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Stærsta uppgjafarglímumót á Íslandi fer fram á morgun í húsnæði Mjölnis. Mótið hefst kl. 11.00 og eru rúmlega sjötíu keppendur skráðir til leiks úr a.m.k. fimm félögum frá Reykjavík, Garðabæ, Akureyri...
Meira
Goðsögnin Chuck Norris er mikill NFL-aðdáandi. Svo mikill að hann hefur skrifað gríðarlangan pistil til varnar Tim Tebow sem hann hreinlega elskar.
Meira
Forráðamenn NFL-deildarinnar í ameríska fótboltanum ákváðu í gær hvar Super Bowl leikirnir 2016 og 2017 fara fram en það voru borgirnar San Francisco og Houston sem hlutu hnossið að þessu sinni. San F...
Meira
Alls munu 125 íþróttamenn keppa fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem hefjast í Lúxemborg í næstu viku. Ísland tekur þátt í öllum ellefu keppnisgreinunum og stefnir að því að vinna flest gull allr...
Meira
Fimleikasamband Íslands hefur valið 10 einstaklinga til að til að taka þátt í Smáþjóðaleikunum sem fara fram í Lúxemborg 26. maí - 2. júní næstkomandi.
Meira
Mjölnismennirnir Brynjólfur Ingvarsson og Damian Zorczykowski sigruðu í áhugamannabardögum sínum í blönduðum bardgaíþróttum í Ryoshin-keppninni Dublin á Írlandi á laugardagskvöldið.
Meira
Söguleg stund var í húsnæði fimleiksfélagsins Gerplu í gær þegar fyrsta Íslandsmótið í AT fimleikum fór fram. Í AT fimleikum keppa tveir keppendur á hverju áhaldi og því um úrslitaviðureign að ræða hv...
Meira
Spánverjinn Rafael Nadal fór illa með Svisslendinginn Roger Federer í úrslitaleik Opna ítalska meistaramótsins í tennis sem lauk í gær. Nadal hreinlega flengdi Federer í úrslitaleiknum og vann leikinn...
Meira
Rússneski hnefaleikakappinn Denis Lebedev beið lægri hlut gegn Panamamanninum Guillermo Jones í bardaga um heimsmeistaratitilinn í veltivigt í Moskvu á föstudagskvöldið.
Meira
Guðmundur Stephensen gaf hvorki kost á sér í íslenska landsliðið á HM í París né Smáþjóðaleikana sem fram fara í lok mánaðar. Borðtenniskappinn þrítugi, sem varð á dögunum hollenskur meistari með liði...
Meira
Titus Young, fyrrum útherji hjá Detroit og St. Louis, hefur lýst sig saklausan af átta ákærum sem honum hafa verið birtar í dómssal í Kaliforníu.
Meira
Í hádeginu frumsýnir Vísir fyrsta sýnishornið úr heimildarmyndinni Ölli sem fjallar um líf og leik körfuknattleiksmannsins Örlygs Arons Sturlusonar sem af flestum er talinn vera eitt mesta efni í sögu...
Meira