Fótbolti

Geir gefur ekki kost á sér til formanns KSÍ

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands.
Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands. Vísir/Anton
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér sem formaður. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum sem birt var á vef KSÍ rétt í þessu en þar segist Geir stoltur af starfi sínu og framlagi til íslenskrar knattspyrnu.

Þá biður hann samstarfsfólk sitt hjá sambandinu, aðildarfélög þess og forystumenn íslenskra knattspyrnufélaga að virða ákvörðun hans og sameinast um að kjósa nýjan formann íslenskri knattspyrnu til heilla.

Ársþing KSÍ fer fram í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar næstkomandi. Guðni Bergsson lýsti yfir framboði til formanns í nóvember síðastliðnum og í kjölfarið lýsti Geir því yfir að hann ætlaði áfram að sækjast eftir formennsku í sambandinu.

Um tveimur vikum síðar greindi Vísir frá því að Björn Einarsson, formaður Víkings, væri að íhuga framboð til formanns KSÍ en í gær sagði Fótbolti.net frá því að Björn myndi gera það upp við sig á næstu dögum hvort hann fer fram eða ekki.

Yfirlýsingu Geirs þess efnis að hann hyggst ekki halda áfram sem formaður KSÍ má sjá í heild sinni hér að neðan.

Snemma á níunda áratugnum fyrir rúmum 30 árum hóf ég afskipti af knattspyrnumálum utan mín félags þegar ég tók að mér niðurröðun knattspyrnuleikja í Reykjavík, sat síðan í stjórn KSÍ 1986-87 undir forystu Ellerts B. Schram og tók að mér formennsku í mótanefnd KSÍ.

Eitt leiddi af öðru og um áramótin 1992-93 hóf ég störf á skrifstofu KSÍ, en þá hafði Eggert Magnússon tekið við formennsku KSÍ. Ég tók síðan við sem framkvæmdastjóri KSÍ 1997 og hef verið formaður síðan 2007. Um þessi áramót hef ég staðið vaktina fyrir KSÍ samfellt í tæpan aldarfjórðung.

Starfið hefur verið fjölbreytt og skemmtilegt en um leið krefjandi. Góðir stjórnunarhættir kalla á endurnýjun í forystu samtaka eins og KSÍ. Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér til endurkjörs á næsta ársþingi og bið samstarfsfólk í KSÍ, aðildarfélög KSÍ og forystumenn íslenskra knattspyrnufélaga að virða ákvörðun mína og sameinast um að kjósa nýjan formann íslenskri knattspyrnu til heilla. Ég er stoltur af starfi mínu og framlagi til íslenskrar knattspyrnu og hef ávallt haft hagsmuni heildarinnar í huga.

Knattspyrnusamband Íslands stendur nú - utan sem innan vallar - öflugara en nokkru sinni fyrr.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×