Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bar að upplýsa Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, um fund sem Geir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, og Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra áttu með bankastjórn Seðlabankans. Þetta er niðurstaða meirihluta Landsdóms sem kvað upp dóm sinn í dag. Samkvæmt dómnum er Geir sýknaður af þremur ákæruliðum af fjórum. Hann var aftur á móti fundinn sekur um að hafa ekki haldið fundi um mikilvæg málefni.
„Viðskiptaráðherra, sem fór með mál sem vörðuðu fjármálamarkaðinn, þar með talda bankana, sat ekki fund ákærða, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra með bankastjórn Seðlabanka Íslands 7. febrúar 2008. Af þeim sökum var ákærða skylt að kynna viðskiptaráðherra þegar í stað upplýsingar, sem þar höfðu komið fram um hættuna, sem steðjaði að bönkunum og íslensku efnahagslífi. Ekki verður dregið í efa að ákærði hafi af pólitískum ástæðum þurft að upplýsa utanríkisráðherra sem formann hins ríkisstjórnarflokksins um þá alvarlegu stöðu, sem uppi var, en slíkt ólögmælt samráð getur sem áður segir ekki komið í stað þess samstarfs, sem stjórnarskrá og lög gera ráð fyrir að forsætisráðherra hafi við aðra ráðherra um einstök mál sem undir þá heyra," segir meirihluti Landsdóms.
Meirihlutinn segir jafnframt að vegna þeirrar hættu, sem vofði yfir bönkunum, hafi verið brýnt að komið yrði þá þegar á nánu samstarfi milli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands til að rannsaka málið ofan í kjölinn undir sameiginlegri yfirstjórn ráðherranna, sem stofnanirnar heyrðu undir, en það voru viðskiptaráðherra og Geir sem forsætisráðherra. Í því sambandi verði ekki horft fram hjá því að með slíku samstarfi stofnananna tveggja, þar sem gætt hefði verið af hendi Fjármálaeftirlitsins skýrrar skyldu samkvæmt 15. gr. laga nr. 87/1998 til að veita seðlabankanum upplýsingar um starfsemi viðskiptabankanna, kynni að hafa verið leitt í ljós að þeir hafi ekki aðeins átt við lausafjárvanda að etja, svo sem talið var allt frá byrjun árs 2008, heldur einnig eiginfjárvanda vegna svonefndra krosslánatengsla. Gögn málsins bendi til að grunsemdir hafi þá þegar vaknað um að ekki væri allt með felldu í því efni, svo sem kom meðal annars fram í minnisblaði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um fund hennar 15. janúar 2008 með viðskiptaráðherra, aðstoðarmanni hans og formanni stjórnar Fjármálaeftirlitsins.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra og Framsóknarflokkurinn fjóra í nýrri ríkisstjórn. Ekki verður skipaður sérstakur umhverfisráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður forsætisráðherra og Bja...
Meira
Ekki var staðið rétt að uppsetningu olíugeymis við Þríhnúkagíga í Bláfjöllum, samkvæmt úttekt Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Umhverfisráðherra hefur, að beiðni OR, boðað hagsmunaðila á fund um málið, sem...
Meira
Sjö af tíu sjúklingum á legudeild Klepps bíða eftir framhaldsbúsetuúrræðum utan deildarinnar. Aðstæður sjúklinga á deildinni hafa lítið sem ekkert breyst síðan Fréttablaðið fjallaði um málið fyrir mei...
Meira
Niðurstaða nýrrar breskrar rannsóknar leiðir í ljós að ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða en börn sem sofa ein í rúmi.
Meira
"Ég er nú ekki að skipta um starfsgrein, menn geta verið alveg rólegir,“ segir Helgi Jóhannesson, landsþekktur hæstaréttarlögmaður og nú nýútskrifaður gönguleiðsögumaður.
Meira
Ekki verður horfið frá áformum um lagningu nýs Álftanesvegar í gegnum Gálgahraun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar sem Ögmundur Jónasson kallaði eftir í mars. Andri Snær Magnason, rith...
Meira
DómsmálSlitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008.
Meira
Lögreglumál Konan sem sakar þekktan glæpamann um að hafa nauðgað sér og varð kveikjan að líkamsárásinni í Ystaseli á föstudag hefur lagt fram kæru gegn manninum.
Meira
sveitarstjórnir"Það segir sig sjálft að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að starfa af heilindum í þessum meirihluta þá er náttúrlega enginn meirihluti,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi F...
Meira
Fjallgöngumaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson náði þeim merka áfanga að klífa upp á topp Everest-fjallsins í gær og er lagður af stað niður fjallið aftur. Hann staldraði stutt við á toppnum. Haraldur Ö...
Meira
Helgi Hjörvar var í gær kjörinn nýr formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Helgi skipaði annað sæti á lista flokksins í Reykjavík suður í síðustu kosningum. Oddný G. Harðardóttir var kjörin varaformað...
Meira
"Ég treysti honum mjög vel að sinna þessu af alúð, festu og sanngirni,“ sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formann Framsóknarflokksins, spurður hvernig honum ...
Meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra, sagði í samtali við fréttastofu að ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gengi annarsvegar út að...
Meira
Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir fund flokksráðsins fyrr í kvöld hafa verið afar góðan. Spurð hvað felist í nýjum stjórnarsáttmála sem var samþykktur á fundinum, s...
Meira
Fundir Flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll og Miðstjórn Framsóknarflokksins í Rúgbrauðsgerðinni, eru byrjaðir, en þar verður nýr stjórnarsáttmáli kynntur fyrir félagsmönnum og atkvæði greidd um ...
Meira
Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa boðið til blaðamannafundar á Laugarvatni klukkan 11:15 á morgun. Á fundinum munu formennirnir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson un...
Meira
Breytinga er þörf á því hvernig staðið er að gerð kjarasamninga og nauðsynlegt er að auka aga og skerpa vinnubrögð samningsaðila. Þetta er niðurstaða vinnuhóps samtaka launafólks og vinnuveitenda sem ...
Meira
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu...
Meira
Gagnrýnendur færslu Álftanesvegar um Gálgahraun segja að ekki hafi verið farið að tilmælum innanríkisráðherra sem vildi að forsendur framkvæmdarinnar yrðu endurskoðaðar. Bæjarstjórn Garðabæjar og Vega...
Meira