Innlent

Gefa út fræðslumynd fyrir börn gegn kynferðislegu ofbeldi

Birgir Olgeirsson skrifar
Stýrihópur þriggja ráðuneyta hefur óskað eftir því að skólar sýni fræðslumynd fyrir börn gegn kynferðislegu ofbeldi í skólum.

Stýrihópurinn er á vegum velferðarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og innanríkisráðuneytis og var myndaður um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Hefur hópurinn, ásamt Barnaverndarstofu og Umboðsmanni barna, hafa óskað eftir því við skólastjórnendur grunnskóla að sýna fræðslumyndina sem hér fylgir í skólum þann 18. nóvember.

Eiga skólarnir þannig að geta lagt sitt að mörkum til að leiðbeina börnum sem kunna að vera í viðkvæmri stöðu og stuðlað jafnframt að aukinni samfélagsvitund um kynferðisofbeldi gegn börnum.

Evrópuráðið gerði teiknimyndina í tilefni dagsins. Hún er um 3 mínútur að lengd og var unnin í samráði við hóp barna. Myndin er með einföldum og aðgengilegum boðskap fyrir börn á aldrinum 9–13 ára. Börn eru hvött til þess að leita til einhvers sem þau treysta ef þau eða einhver sem þau þekkja hefur verið eða er beittur ofbeldi.

Er markmiðið með birtingu myndarinnar er að stuðla að aukinni umræðu og samfélagsvitund um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og að kynna  samning Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðisofbeldi, svonefndan Lanzarote-samning. Samningurinn er heildstæðasta og víðtækasta alþjóðasamþykkt sem gerð hefur verið um vernd barna gegn kynferðisofbeldi. Ísland undirritaði Lanzarote-samninginn árið 2008 og fullgilti hann árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×